Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 116
114
má nefna það, að unglingsstúlka lenti í rifjingarvél með höndina og
tætti hana mjög, en braut miðhandarbein. Barn braut bæði bein í
framhandlegg, 2 fengu upphandleggsbrot, 2 menn viðbeinsbrot, 1
fór úr axlarliðnum, og 1 sagaði framan af fingri á sér. Þá kviknaði
í fötum konu, sem fékk mjög útbreidd brunasár á kviðinn og útlim-
ina, en greri þó að lokum, en piltur brenndi sig talsvert á hendi
og fæti. Þá voru ýmis minna háttar meiðsli og þeirra mest, að maður
skar í sundur flexorsinar á fingri, og voru þær saumaðar saman.
Sauðárkróks. Slys hef ég skráð 200, flest smá. Hin helztu: Subluxa-
tio radii perannularis 3, allar á smábörnum, fract. complicata digit-
orum cum mutilatione 3 (2 fóru með hönd í vél, og 1 hjó sig með
öxi), radii (Collesi) 6, radii & processus styloidei ulnae 2 (annað
við fall af hestbaki), radii dextri & capituli radii sinistri 1 (fall af
hestbaki), antibrachii 2, humeri 1 (fall af hestbaki), humeri supra-
condylica 1 (fall af hestbaki); condyli humeri 1, humeri & capituli radii 1,
claviculae 4, costae 4, colli femoris 2 (konur á níræðisaldri, önnur
dó eftir % mánuð, hin komst á fætur og staulast um, gróin), fibulae
1 (datt af baki drukkinn), malleoli externi 3, cruris 1 (illa brotinn
og lá lengi á sjúkrahúsi), calcanei 2, metacarpi 1. Maður var að stíga
á hestbak (drukkinn), en slapp úr ístaðinu og datt; féklc við það
mikla ruptura quadricipis femoris (var skorinn á Akureyri). Annar
var að stíga á hestbak, en hesturinn hljóp út undan sér, svo að mað-
urinn féll og fékk ruptura ligamenti collateralis interni genus; lá lengi
á sjúkrahúsi. Batnaði báðum sæmilega. Drengur stakk nál inn í hnéð,
fékk pyarthros, en batnaði við incisio og pensilín. Piltur varð undir
malarþunga, er bakki sprakk fram. Marðist hann allmikið öðrum
megin, en slapp við alvarleg meiðsli. 7 ára telpa var á ferð á hest-
baki, en hesturinn flæktist í gaddavír og fældist; datt hún af baki
og lenti í vírnum og dróst með honum, fékk marga skurði á andlit
og fótleggi og var saumuð saman á 12 stöðum. 43 ára gamall bóndi
skar á háls sér og fannst þannig liggjandi úti í hesthúsi. Sárið var
3 sm langt og djúpt, undir vinstra kjálkabarði og hafði blætt tals-
vert. Var það saumað og greri. Hafði maðurinn verið þunglyndur
undanfarið. Barn á 2. ári saup á lysólglasi og var orðið hálf-comatöst.
Fékk stimulantia og magaskolun og hresstist fljótlega. Einn maður
fékk væga congelatio.
Hofsós. Ungur piltur, 24 ára, varð fyrir snjóflóði á gamlársdag,
er hann var á rjúpnaveiðum. Virtist hann haf beðið bana samstundis
og hann varð fyrir snjóflóðinu. Lík piltsins fannst, 11—12 klst. eítir
að flóðið féll.
Ólafsfj. Flest smáslys. Combustiones 14, vulnera dilacerata 22
(eitt var drengur, sem fór í steypuhrærivél með hönd, og flettist húð
og fitulag af, alveg frá því neðst á framhandlegg, af thenar og
hypothenar og niður í miðjan lófa, svo að vöðvar og sinar lágu alveg
bert), corpora aliena digiti 7 (tvisvar önglar, tvisvar glerflísar, emu
sinni tréflís, einu sinni nál, einu sinni vír), lux. dig'iti 1, vulnera
incisiva 16, distorsiones 6, contusiones 8, corpus alienum oesophagi
1, conjunctivae 3, nasi 1 (tala), vulnus punctum 1, fract. fibulae
tibiae 1, radii 2, costae 2, digiti 1 (maður héjt við girðingarstaur,