Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 222
220
bólga i hægra lunga. Ályktun: Kransæðastífla, ásamt byrjandi lungnabólgu,
sem hefur aukið á erfiði hjarta.
34. 14. nóvember. G. S. S-son, 23 ára. Hafði farið mikið drukkinn út á hafnar-
garð í Heykjavik ásamt tveimur öðrum 3%o. Hinir tveir fóru út í mótorbát,
þar sem líeir sofnuðu ofurvölva, en vissu ekkert um félaga sinn, sem ekkert
fréttist af, unz lík lians fannst á sjávarbotni vestan við höfnina mi, þá all-
mjög rotið. Útlit var fyrir glóðarauga hægra megin. f blóði fannst l,81%o
alkóhól og í þvagi 2,41%„. Ályktun: Við krufningu fannst enginn sjúkdómur, sem
gæti útskýrt dauða mannsins. Hins vegar fundust breytingar i lungum, sem geta
komið heim við, að maðurinn hafi drukknað, en þær voru þó farnar að
tapa sér, vegna þess hve langt var um liðið. Breytingar í húð bentu til þess,
að líkið hefði legið töluvert lengi í sjó. Alkóhólmagn i blóði og þvagi
benda til, að maðurinn hafi verið ölvaður.
35. 25. nóvember. K. J. M-son, 31 árs. Ætlaði drukkinn um borð í skip um miðja
nótt, en féll á milli báts og bryggju. Er hann náðist með hjálp lögreglunnar,
var hann látinn. í blóði fannst 1,52%0 alkóhól og í þvagi 1,56%0. Við likskoðun
og krufningu voru öll einkenni drukknunar. Auk þess marblæðing á heila-
himnum og áverki á enni og hnakka.
36. 26. nóvember. G. G-son, 21 árs. Fannst látinn á viðavangi, þar sem hann hafði
kvöldið áður verið að drekka með bílstjóra. Mikið blóð hafði runnið úr höfði
mannsins. Mikil hrufl sáust á höfði og brjóstkassa, þar sem mörg rif voru brot-
in. í hægra brjóstlioli voru 600 sm3 af blóði. Á hauskúpu mikið brot, frá enni
og aftur i hnakka. Mikið mar neðan á heila. Kúpubotn mölbrotinn. í blóði
2,02%o alkóhól. Ályktun: Sýnilegt er af áverkum á líkinu og af krufningu,
að ekið hefur verið yfir manninn, og koma áverkarnir heim við það, að tvö-
földu hjóli á þunguin bíl hafi verið ekið yfir hann þannig, að annað hjólið
hefur farið yfir brjóstkassann og hitt yfir höfuðið. Þunginn hefur verið
mjög mikill, þvi að áverkarnir eru svo miklir, að sýnilegt er, að hauskúpan
hefur mikið til lagzt saman, og þannig hefur lieili rifnað á stóru svæði neðan
til. Blóðrannsókn sýndi, að maðurinn hefur verið ölvaður, er hann dó. Ekki
fundust nein einltenni þess, að maðurinn hefði verið barinn með flösku eða
öðru verkfæri.
37. 28. nóvember. O. E-son, 32 ára. Sat við fjórða mann að drykkju hinn 2%i, og
voru etnir súrsaðir bringukollar með. Morguninn eftir fór maðurinn til vinnu
(var bílstjóri), sæmilega liress, en veiktist um kvöldið með uppköstum, og
dró mjög af honum um nóttina. Kvartaði um þurrk i munni, sjóntruflanir,
síðan kyngingarörðugleika og máttleysi, sem ágerðist, unz hann andaðist að
morgni hins 27. Hinir mennirnir, sem með honum voru, fengu allir þuri’k
í munn, kyngingarörðugleika og sjóntruflanir (akkommodationslömun), en
þeir jöfnuðu sig fljótt. Við krufningu fannst greinileg útvíkkun og aukin
blóðsókn í jejunum á 2 metra svæði. Þar fyrir neðan voru garnir eðlilegar.
Þar sem grunur lék á, að um botulismus gæti verið að ræða, var garnainni-
hald úr ileum skilið og síað í gerilþéttri síu, síaða vökvanum var síðan
dælt í naggris. Dýrin drápust á %—2 sólarhringum. Nægði Vlo sm3 til að
drepa naggrís. Clostridium botulinum var síðan einangrað úr garnainni-
haldi mannsins, og seinna einnig úr súrsaða kjötinu.
38. 28. desember. J. K-son, 24 ára. Var i bíl, sem valt út af vegi, með þeim af-
leiðingum, að maður þessi lézt nokkru seinna. Við krufningu fannst lófa-
stór blæðing milli basts og beins vinstra megin ofan eyra. Afleiðing af
ruptura á arteria meningea media. Þessi blæðing hafði valdið bana með
þrýstingi á heila.
39. 28. desember. Óskirt sveinbarn, 7 mánaða. Veiktist með hita og fékk krampa-
köst. Dó skyndilega í krampakasti innan sólarhrings frá þvi, að það veiktist.
Við krufningu fannst meningitis cerebrospinalis epidemica.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Blönduós. Skoðunargerð eftir ltröfu lögreglustjóra fór fram á líki
drengs þess, er varð fyrir voðaskoti í Höíðakaupstað, en ekki var talið
nauðsynlegt, að ltruining á líkinu færi fram.