Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Qupperneq 223
221
Akureijrar. Rannsakað vínandamagn í blóði vegna ölvunar við bif-
reiðaakstur þrisvar. Blóðsýnishorn tekið vegna barnsfaðernismáls
1 sinni. Líkskoðun framkvæmd 4 sinnum. Athugun á áverka á yfir-
lögregluþjóni bæjarins ásamt greinargerð. Geðrannsókn þrisvar.
22. Sótthreinsanir samkvæmt lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikningum, er borizt hafa landlæknis-
skrifstofunni, hefur sótthreinsun heimila farið 69 sinnum fram á árinu
á öllu landinu, og eru tíðustu tilefnin berklaveiki (52%) og skarlats-
sótt (30%), en önnur tilefni fágæt.
23. Húsdýrasjúkdómar.
Læknar láta þessa getið:
Btldudals. Talsvert ber á doða í kúm, bæði bráðum og langvinnum.
Batnar oftast fljótt við kalkgjöf og kalkinnspýtingar, ásamt loftdæl-
ingu í júgrin. Nokkuð um júgurbólgu. „Hvanneyrarveiki“, eða „vot-
heyseitrun“, hefur stungið sér niður í sauðfé, en hefur batnað við
súlfalyf, ef gefin eru í tíma.
Árnes. Þorsteins Guðmundssonar frá Finnbogastöðum oftast leitað
«1 dýralækninga og þykir takast vel. Varla mun hann fá mikið fyrir
það, nema lof og ánægjuna, þegar vel gengur.
Blönduós. Húsdýrasjúkdómar eru hér allmargir og útbreiddir. Að
tísu hefur dregið mjög úr sauðfjársjúkdómum við fjárskiptin, en
mjög algengur er doði i kúm, og tíðkast mjög mikið að dæla inn í þær
kalkglúkónati, sem er óbrigðult við þeim sjúkdómi, ef gert er í tæka
tíð. Bændur framkvæma sjálfir þessa aðgerð. Á 2 eða 3 bæi lcom
mjög illkynjuð blóðkreppusótt í kýrnar, svo að þær urðu fárveikar
og nytlausar, án þess þó að drepast. Var talið af dýralækni, að sótt-
kveikjan hefði borizt í fóðurmjölspokum, sem komið hefðu frá
sýktum heimilum og verið notaðir aftur, án þess að sótthreinsun á þeim
aítti sér stað. Súlfaguanidín ásamt eikai’berki og krít reyndist allvel
við sjúkdómi þessum, en er tiltölulega dýrt.
Sauðárkróks. Nú í haust var skorið niður allt sauðfé austan Hér-
aðsvatna og tekin lömb á svæðið vestan vatna, svo að nú ætti héraðið
að vera laust við sauðfjárpestirnar.
Ólafsff. Á árinu var allt fé skoiáð niður, en sauðfjársjúkdómar voru
ckki farnir að gera vart við sig að neinu ráði. Aftur er töluvert um
hvillasemi í nautgripuixx, og bráðadaxxða varð vart á árinu.
Grenivíkur. Nokkuð bar á því, að kýr snöggdræpust. Bóndi einn
hér í hreppi missti 8 kýr og 1 kvígu, frá því í marzmánuði og þar til
1 ágúst, af 13 í fjósi, og er þetta einsdæxni hér.
Kópaskers. Fjárskipti hafa nú farið fraxxx í þeinx sveitum, sem
nxæðiveiki hefur hei'jað á, en garnaveiki hefur ekki borizt í héraðið.
Breiðabólsstaðar. Doði algengur í kúm. Lungnaormar og blóðsótt
kemur fyrir í fé. Einnig eru sullir ennþá algengir. „Töðuáma“ og