Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 34
32
Reykhóla. Barst frá Reykjavík á einn bæ í héraðinu um mánaða-
mótin marz og apríl. Heimilisfólkið þar tók veikina, en hún barst
ekki út.
Patreksfj. Fór að stinga sér niður í marz, fór hægt yfir og var ekki
lokið fyrr en í júlíbyrjun. Veikin tók mjög marga, en var væg og
lítið um fylgikvilla.
Bildudals. Geklc hér ekki þetta árið.
Flateyrar. Fór hér um í apríl—maí, væg og fylgikvillalaus.
ísafj. G.ekk hér í maí og júní; veiktist aðallega fólk, sem nýflutt var
í bæinn, eða hafði sloppið við inflúenzuna í fyrra. Veikindatilfellin
voru mjög „typisk“, svo og útbreiðslan á þeim heimilum, sem á annað
borð tóku veikina. Það er reynsla mín hér, að eigi verði verulegir far-
aldrar úr veikinni, nema hún gangi annað hvert ár eða sjaldnar.
Árnes. Kom samtímis upp á mörgum bæjum í apríl og gekk hratt
yfir. Eftirköst 4 eyrnabólgutilfelli, en annars mjög væg. Fjaraði út
í maí.
Hólmavíkur. 1 janúar gekk faraldur, sem skráður var inflúenza í 15
tilfellum, sem ég sá sjálfur, en allmargir fleiri veiktust. Lýsti sér sem
höfuðverkur, beinverkir, hár hiti í 2—3 daga, catarrhalia lítið áberandi,
aldrei glögg meningealeinlcenni. Enginn veiktist eftir 25. janúar. í
samráði við heilbrigðisstjórnina var fyrirskipað samkomu- og skóla-
bann á Hólmavík frá 18. janúar til 1. febrúar, meðfram vegna almenns
ótta við hina dularfullu Akureyrarveiki. í júlímánuði gekk svipaður
faraldur, allútbreiddur, en vægur, hiti og höfuðverkur að mestu án
catarrhalia, tók bæði börn og fullorðna. Allmargir voru skráðir með
kvefsótt, einkum þar sem catarrhalia voru áberandi. Vafasamt er sjálf-
sagt að telja þessa faraldra inflúenzu, en inflúenzunafnið vill oft verða
eins konar ruslakista, jafnt hjá læknum sem almenningi, þegar ónafn-
greindar „pestir“ ganga.
Hvammstanga. Samkvæmt farsóttaskrám virðist hafa verið um sxná-
faraldur að ræða í febrúar. Annars aðeins fá tilfelli kölluð þvi nafni.
Blönduós. Barst inn í héraðið í marz og gekk nokkuð þá og næstu
vikur. Var yfirleitt væg, lítið um fylgikvilla og er illa aðgreind á mán-
aðarskýrslunum frá kvefsóttinni, sem talsvert bar á um vorið og fram
á sumarið.
Sauðárkróks. Inflúenza barst inn í héraðið í apríl eða sennilega i
marzlok og verður mikið útbreidd í apríl og maí, en svo dregur ur
henni. Viðloða er hún fram í jiilí. Veikin væg og fáir fylgikvillar.
Hofsós. Nokkur faraldur í júní og júlí.
Ólafsfj. Mikill faraldur, sem byrjaði síðast í apríl og stóð fram yfu'
næstu mánaðamót. Vegna þess að ég veiktist sjálfur, í fyrsta sinn a
ævinni af þeim sjúkdómi, fór skráningin í handaskolum, en ég tei
víst, að full 90% héraðsbúa hafi veikzt. Á sumum heimilum lögðust
allir í einu, og voru þau því bjargarlaus. Það, sem einkenndi þenna
faraldur, var, hvað afturbatinn tók langan tíma, þótt hiti væri hort-
inn. Mjög litið um fylgikvilla. 1 sjúklingur féklc lungnabólgu.
Dalvílcur. Gekk í apríl.
Akureyrar. Barst hingað frá Reykjavík um miðjan marz, og var það
hin svo kallaða ítalska inflúenza. Veikin breiddist ört út, var tiltölu-