Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 59
57
daga án árangurs. Pensilín i. jn. eyddi öllum einkennum í einni svipan.
Sýfílissjúkling sá ég engan.
Nes. Eftirtektarvert er, aö allir lekandasjúklingarnir eru sjómenn,
sem smitazt hafa í Þýzkalandi. 2 sjúklinganna voru súlfafastir og fengu
því pensilín með góðum árangri. Sárasóttar varð ekki vart á árinu.
Búða. Lekanda varð ekki vart á árinu. 2 karlmenn komu til mín úr
Englandsför með útferð per urethram og flekkótta samvizku. Infectio
þeirra reyndist non specifica.
Djúpavogs. Hef ekki orðið var við kynsjúkdóma i héraðinu.
Breiðabólsstaðar. Varð ekki vart.
Vestmannaeyja. Fram eru taldir á mánaðarskrám 2 lekandasjúk-
kngar, en ég geri ráð fyrir, að hér sé eitthvað vantalið. Veikin batnar
fljótt í byrj un við súlfalyf og pensilín, ef þau ekki duga. 2 innlendir
sárasóttarsjúklingar á árinu (hvorugur á mánaðarskrá).
Stórólfshvols. 1 piltur fékk lekanda, skrapp á þjóðhátíð Vestmanna-
eyja um sumarið og smitaðist þar (ekki á mánaðarskrá).
Eyrarbakka. Ekkert tilfelli.
Keflavíkur. Nokkur tilfelli af lekanda í sambandi við Keflavíkur-
flugvöll, en reynt að lækna þá, sem til spyrzt, og samvinna milli lækna
hér og á flugvellinum góð. Sárasóttar á 2. stigi varð vart, og fékk
sjúklingurinn margar innspýtingar, þar til hann varð neikvæður við
blóðrannsókn.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur V, VI, VIII, IX og XI.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1. Eftir mánaðarskrám:
Tb. pulm. . Tb. al. loc. . 1940 . 161 68 1941 224 127 1942 156 75 1943 180 87 1944 172 59 1945 151 49 1946 126 55 1947 152 59 1948 178 42 1949 126 43
Alls . 229 351 231 267 231 200 181 211 220 169
Bánir . 104 120 104 106 96 88 89 71 47 36
2. Eftir berklabókum (sjúkl. í árslok):
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Tb. pulm. . . 867 854 853 799 748 746 782 829 834 818
Tb. al. loc. . . 239 259 282 250 231 210 257 287 172 172
Alls . 1106 1113 1135 1049 979 956 1039 1116 1006 990
Berkladauðinn lækkar enn, og munu nú ekki margar þjóðir vera
betur á vegi staddar í þessu efni. Nemur berkladánartalan 0,3%o lands-
manna. Hlutfallstala heilaberkladauðans er 8,3% heildarberkladauð-
ans og er með lægsta móti, en hefur orðið lægst 6,7% (1941).
Skýrslur um berklapróf hafa borizt úr 40 héruðum, og taka þau til
10706 manns. Skiptist sá hópur þannig eftir aldri og útkornu:
8