Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 210
208
fjöldi: forstofa, leikstofa, skólastofa og snyrtiherbergi með heitu og
köldu úðabaði. Húsið er hitað með kolamiðstöð. Vatnssalerni er
einnig.
Seyðisfi. Engin breyting á skólahaldi. Skólaskoðun fór fram í
byrjun kennslu, nerna á Þórarinsstaðaeyrum nokkru seinna vegna
óhagstæðs veðurs og færðar. Börnin eru vegin og mæld þrisvar á skóla-
árinu, og læknir hefur venjulega miðsvetrarskoðun með tilliti til
óþrifakvilla.
Hafnar. Barnaskóli i Öræfum hefur til afnota rúmgóða stofu í hinu
myndarlega nýja félagsheimili Öræfinga, sem er nær fullsmiðað.
Brciðabólsstaðar. Aðbúnaður skólabarna er áfram mjög óviðun-
andi. óvíða eru nokkur hreinlætistæki, húsakynni léleg, kennslutæki
lítil og úr sér gengin. Ekki eru samt þrengslin, þar sem börnum
hefur fækkað mjög í sveitum undanfarin ár eins og öðru fólki.
Vestmannaeyja. Öll börn skólanna og kennarar, svo og allir skóla-
staðir og námskeiða skoðað af héraðslækni. Hjúkrunarkona er við
barnaskólann hálfan daginn, hinn tímann á berklavarnarstöð.
Stórólfshvols. Barnaskólahús Vestur-Eyfellinga brann í nóvember
1949. Kennt var úr því á heimili kennarans. Skólahús í smíðum.
Eyrarbakka. Á Stokkseyri er verið að reisa nýtt skólahús og skóla-
stjórabústað. Á Eyrarbakka er nær því fullgerður skólastjórabú-
staður.
12. Barnauppeldi.
Læknar láta þessa getið:
Akranes. Enda þótt meðferð ungbarna megi teljast góð og mæður
láti sér annt um að fara eftir heilbrigðisreglum í þeim greinum, svo
og að láta börnum sinum líða vel til fæðis og fata, þá skortir mikið
á um gott uppeldi og ýmsa hollustuháttu í þeim efnum. Börnin hafa
yfirleitt of lítið eftirlit. Svo virðist jafnvel sem foreldrar viti stund-
um ekki, hvað þeim líður tímunum saman. I því sambandi má
benda á, að tiltölulega ung börn eru að flækjast niðri á bryggjum og
annars staðar niður við sjó eftirlitslaus, og geta slys af hlotizt, því
að hin fámenna lögregla getur ekki verið barnfóstra fyrir bæinn að
þessu leyti. Enn fremur hafa margir foreldrar litla reglu á að láta
börnin fara í rúmið á hæfilegum tíma, og eru þau, enda smábörn, úti
við fram eftir öllum kvöldum. Loks má nefna, að mikið skortir á
uppeldi í siðprýði og góðri framkomu hjá mörgum, og stendur þessi
staður ef til vill mörgum öðrum að baki að þessu leyti. Foreldrar
virðast margir varpa þessum áhyggjum sínum upp á kennarana,
en þeir taka ekki við börnunum fyrr en á 7 ára aldri, og samvinna
kennara og heimila líkleg'a ekki svo góð sem skyldi.
Flateyrar. Barnauppeldi sæmilegt víðast hvar, líkt og fyrr.
Blönduós. Mun ekki vera verra hér en víðast hvar annars staðar,
enda hefur fólkið ekki drukkið inn í sig' neinar nýtízkukreddur í
þeim efnum. Hér sem annars staðar eru vitanlega mæður, sem lítt
eru hæfar til að ala upp börn vegna bjálfalegs eftirlætis. Yerst er
iðjuleysi unglinga í kauptúnunum, því að sumir foreldrar láta jafn-