Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 44
42
Akureyrar. Eigi getið um ristil á mánaðarskrám, en komið munu
þó hafa fyrir a. m. k. 3—4 tilfelii, þar af 1 i andliti, og tók það að
heita mátti allan helming andlitsins. Þetta tilfelli var talsvert þungt
með háum hita, en lagaðist þó tiltölulega fljótt, einkum eftir að sjúk-
lingurinn fékk B-vítamín og pitúitrín í talsvert stórum skömmtum.
Kópaskers. 4 tilfelli á árinu, dreifð og ekkert samband hægt að finna
á milli þeirra.
Búða. Ristil fengu 2. Annar þeirra, roskinn maður, var lengi mjög
illa haldinn vegna verkja og lengi að ná sér.
Breiðabólsstaðar. 4 væg tilfelli.
Stórólfshvols. 1 sjúklingur skráður með þenna kvilla, 68 ára karl-
maður með herpes regionis frontalis.
21. Gulusótt (icterus epidemicus).
Töflur II, III og IV, 21.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl......... 38 102 169 82 17 8 12 3 1 3
Danir ........ ,, ,, ,, ,, ,, 1 ,, ,, 1
Læknar láta þessa getið:
Bíldudals. Kona á sjötugsaldri veiktist af gulusótt. Einkenni vel
greinileg. Batnaði á 2 mánuðum.
ísafj. Aðeins 1 tilfelli skráð, en sjúkdómsgreiningin hæpin, og kann
hér að hafa verið um létta hepatitis að ræða.
Nes. Tvítugur maður, nýkominn úr siglingu, varð allmikið veikur
og heiðgulur. Batnaði á ca. 3 vikum. (Tilfellið ekki skráð á farsótta-
skrá).
22. Kossageit (impetigo contagiosa).
Töflur II, III og IV, 22.
Sjúklingafiöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949'
Sjúkl......... 289 629 425 274 179 127 136 90 68 64
Læknar láta þessa getið:
Ólafsvíkur. Varð vart.
Búðardals. Nokkur tilfelli. Ekki á mánaðarskrá.
Flategrar. Ekki ótíður hér. (Ekkert tilfelli á farsóttaskrá).
ísafi. Fáein dreifð tilfelli.
Ögur. Varð vart í Súðavík.
Hólmavikur. Samfara hálsbólgufaraldri á Drangsnesi, en nokkur létt
tilfelli munu óskráð.
Blönduós. 3 börn á Blönduósi og 1 i Höfðakaupstað. Þar ytra frétti
ég þó til fleiri tilfella, sem sennilega heyra hér undir, en voru ekki
skrásett.
Sauðárkróks. Nokkur tilfelli skráð, en sjálfsagt eru alltaf nokkru
fleiri tilfelli en koma á skýrslur.