Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 92
90
51. Tetania.
Flateyrar. 1 tilfelli, 38 ára pneumothoraxsjúklingur; fékk þrisvar
krampaköst.
52. Torticollis congenitus.
Árnes. 1 ársgamalt barn. Horfur sæmilegar.
53. Tumor cerebri.
Borgarnes. Stúlka dó 9 ára úr afleiðingum heilatúmors; var óper-
eruð í Kaupmannahöfn 1949, en dó sumarið 1949 með heilaeinkennum.
54. Ulcus ventriculi.
Flateyrar. 4 tilfelli skráð, eitt með miklum blæðingum. Var sá sjúk-
lingur sendur flugleiðis á Landsspítalann, en fékk perforatio og
peritonitis og dó. í sambandi við þetta er þess að geta, að flugfélögin
hundsuðu þenna sjúkraflutning vegna farþegaflugs i aðra landshluta,
og urðu af óbætanlegar tafir. Er það furðulegt, að slíkt skuli geta
átt sér stað.
Árnes. 4 tilfelli. Sjúklingarnir hafa allir dvalizt lengur eða skemur
á sjúkrahúsi.
Hofsós. Það bar til á sólstöðudag, að maginn í fertugum sjómanni
perforeraði úti á fiskimiði, skammt frá Drangey. Þetta skeði, rétt
eftir að maðurinn hafði etið og drukkið kaffi úr mal sínum. Með hjálp
unglings, sem var á trillubátnum ásamt sjúklingnum, tókst bátnum
að ná landi við illan leik á rúmri 1 klukkustund. Þegar í land kom,
gekk sjúldingurinn, studdur af unglingnum, upp háan sjávarbakka
heim til sín, enda er hér um harðneskjumann að ræða. Svo vel vildi
til, að sjór var spegilsléttur, sem sjaldgæft er hér við Höfðaströndina,
og því möguleiki að fá sjóflugvél til að flytja sjúklinginn. Náði
ég þegar sambandi við afgreiðslumann Flugfélags íslands á Akureyri,
sem brást mjög fljótt og vel við, og var vélin setzt hér % klst. síðar.
Flaug ég síðan með sjúklinginn til Siglufjarðar, og tók það einar 16
mínútur. Þar beið sjúkrahúslæknirinn tilbúinn að gera aðgerð á sjúk-
lingnum, sem tókst ágætlega. Frá því að ég kom til sjúklingsins og þar
til hann var kominn til Siglufjarðar, liðu aðeins riimar 2 klst. Ég segi
frá þessu hér til að sýna, hve tæknin getur stundum létt undir með
okkur útkjálkalæknunum.
Kópaskers. Nokkrir magasárssjúklingar eru í héraðinu. 1 þeirra var
skorinn upp i Reykjavík á árinu, og virðist hann hafa fengið góðan bata.
Vopnafj. 1 tilfelii.
55. Urticaria.
Bíldudals. Nokkrir hafa fengið þenna kvilla.
Árnes. 1 tilfelli á mánaðarskrá i apríl. Skjótur bati eftir adrenahn-
gjöf, en auk þess gefið C-vítamín og kalk.
Hvammstanga. 10 tilfelli, 9 börn, 1 piltur um tvítugt. Gaf pyr1'
benzamine með ágætum árangri.
Hofsós. Alltaf mjög tíður kvilli, einkum þó í börnum, sem koma 1
héraðið til sumardvalar frá Siglufirði, sbr. ársskýrslu 1946.
Grenivíkur. Gerir alltaf töluvert vart við sig, en virðist batna af
kalkinntökum.