Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 220
218
þverbrotinn, vinstri upphandleggur brotinn og einnig 4 efstu rif. f lifur voru
tvær stórar sprungur, og hafði blætt allmikið úr þeim inn í kviðarhol.
14. 20. mai. H. Þ-son, 45 ára. Var á mótorhjóli og rakst á bil, svo að hann hentist
upp á framhluta bilsins. Var strax fluttur í sjúkrahús, en lézt áður en þangað
kom. Við krufningu fannst neðri vör flett frá kjálka, mikið brot á kúpubotui
og litli heili marinn.
15. 13. júní. V. S. H-dóttir, 70 ára. Hneig niður á götu i Reykjavik og var þegar
örend. Við krufningu fannst allmikil kölkun í báðum kransæðum hjarta,
enn fremur arteriolosclerosis með rýrnun á báðum nýrum (skorpin nýru).
Þetta hvort tveggja virðist hafa verið samverkandi dánarorsök.
16. 17. júní. Ó. Ó-dóttir, 48 ára. Fannst látin og rennblaut í flæðarmáli. Krufning
sýndi greinileg drukknunareinkenni. Suicidium.
17. 22. júní. E. Þ. L-son, 3 ára. Barnið hafði stækkaða kokeitla, og voru þeir
teknir í klórethylsvæfingu. Þegar verið var að Ijúka við að taka eitlana i
nefkoki, lognaðist barnið út af og var örent. Aðgerðin stóð yfir í 3 minútur.
Lífgunartilraunir árangurslausar. Við krufningu fannst enginn sjúkdómur.
Eitlavefur, einnig í milti, var stækkaður, thymus í stærra lagi, 30 g. Margir
telja, að sjúklingur með status thymicolymphaticus þoli verr svæfingar en aðrir.
18. 12. júli D. R., 26 ára karlmaður (amerískur). Dó í sjúkrahúsi á Keflavíkur-
flugvelli eftir viku legu. Léttist um 6 kg siðustu vikuna, áður en liann fór í
sjúkrahús, og var þungt haldinn af hósta og uppgangi. Við krufningu fannst
stífla í vinstri kransæð og ofþensla á hjarta. Thrombi fundist i báðum
ventriculi hjarta, og höfðu sumir þeirra losnað og stíflað æðar í lungum með
infarktmyndun.
19. 12. júli. B. E. P-son, 37 ára. Féll niður örendur i róðri. Við krufningu fannst
mikil kölkun í kransæðum hjarta og stífla í hinni hægri. Arteriolosclerosis
i nýrum.
20. 14. júlí. P. A-son, 20 ára. Steypti sér í sjóinn, en fataðist strax sundið. Hjálp
barst samstundis, en maðurinn var látinn, er hann náðist. Við krufningu
fundust greinileg drukknunareinkenni i lungum. f blóði fannst 1,60%<, alkóhól,
sem sýnir, að maðurinn hefur verið ölvaður.
21. 15. júli. J. M. S-son, 40 ára. Hné niður við vinnu á verkstæði sínu og var ör-
endur. Við krufningu fannst stækkað hjarta (510 g), einkum vinstri ventri-
culus og bæði nýru til muna stækkuð (214 og 228 g). Mikil blóðsókn í
nýrum, en engin bólga sást við smásjárrannsókn. Lifur var geysistór (3190 g)
og mikil fita í henni. Maðurinn virðist hafa verið ofdrykkjumaður með eyði-
lagða lifur, og hættir slíkum mönnum til að deyja skyndilega.
22. 16. júlí. G. W. V-dóttir, 35 ára. Hengdi sig i íbúð sinni. Hafði verið trufluð
á geðsmunum í mörg ár. Suicidium.
23. 28. júli. Þ. K-son, 30 ára. Fannst látinn i rúmi sínu. Við krufningu fannst
mikil blæðing undir lieilabasti (subduralt), sérstaklega yfir lobus temporalis.
Engar blæðingar í sjálfum heilavefnum. Ályktun: Mikil blæðing inn á heila,
og er líklegasta orsök hennar sú, að hann hafi fengið högg á höfuðið.
24. 29. júlí. S. B-dóttir, 65 ára. Varð bráðkvödd í strætisvagni. Við krufningu
fannst stækkað hjarta, einkum vinstri ventriculus. í nýrum arteriolosclerosis.
Ályktun: Hjarta var mjög stækkað, sennilega vegna langvarandi blóðþrýstings-
hækkunar. Skyndileg áreynsla, þótt ekki sé mikil (konan var að flýta sér að
ná i strætisvagn), getur í slíkum tilfellum orðið hjarta um megn, svo að
það gefist upp.
25. 30. júli. R. C., 36 ára (Bandaríkjamaður). Fannst örendur i rúmi sinu um
morguninn. Við krufningu fannst stækkað hjarta og arteriolosclerosis í nýr-
um. Ályktun: Breytingar i hjarta og nýrum benda til, að maðurinn hafi haft
háan blóðþrýsting og útþenslu á vinstra ventriculus, svo að hjartað hafi gefizt
upp af þeim sökum.
26. 16. ágúst. R. B. L-son, 15 ára. Fékk riffilskot i hrygg norðanlands og var
fluttur til Reykjavíkur flugleiðis, en dó daginn eftir. Kúlan fannst með
röntgenmynd neðst í mænugangi, þar sem hún hafði skaðað eina taug af
cauda equina. Var tekin, en pilturinn dó 6 klst. eftir aðgerðina. Við krufn-
ingu fannst, að skotið hafði farið í gegnum colon descendens, þar sem tvö
göt sáust eftir kúluna, en þaðan fór hún inn í 3. lendalið. Lifur var lítil