Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Side 146
144
arnaveiki: Jákvæð Neikvæð Samtals
Ræktun úr koki 20 20
— — nefi — 5 5
— 25 25
msar rannsóknir:
Heterophil antibody próf 3 6 9
Kuldaagglutinationspróf 5 15 20
Streptococcus haemolyticus: Ræktun úr hálsi 4 24 28
— — matvælum 13 13
Kikhósti 1 5 6
Achorion Schönleinii 1 18 19
14 81 95
Ótilgreint 178
Vefjarannsóknir 1031
Krufningar 170
Rh-flokkunarpróf 1129
Rannsóknir á árinu samtals 11074
Framleidd voru substrata, 35 tegundir, samtals 615 lítrar.
D. Matvælaeftirlit ríkiains.
Atvinnudeild Háskólans hefur látið í té eftirfarandi skýrslu um
rannsóknir sínar á matvælum vegna matvælaeftirlits ríkisins á árinu
1949:
I. Matvæli önnur en mjólk og mjólkurvörur.
Auk rannsókna á mjólk, rjóma og rjómaís, voru rannsökuð á árinu
166 sýnishorn matvæla, sem hér segir: Aldinsafi og aldinsöft 5, aldin-
sulta og aldinmauk 2, edik 1, ertur 8, fiskmeti 26, grænmeti 7, kaffi 1>
kakaóvara 12, kjötmeti 59, kornvara 14, neyzluvatn 3, smjör 7, smjör-
líki 7, sykur 1, te 1, ýmislegt 12. Eftirgreind sýnishorn voru ekki
þannig á sig komin, að þau væru í samræmi við gildandi reglur:
Aldinsafi og aldinsöft: 2 sýnishorn af lituðu sykurvatni með kjörnum
voru seld sem ávaxtasaft, 3 sýnishorn voru ranglega auðkennd. Ertur:
2 sýnishorn gular ertur étnar af ertubjöllulirfum (laria pisorum)-
5 dósir af niðursoðnum grænum ertum voru bólgnar („bomberaðar")-
Fiskmeti: 1 sýnishorn af sardínum í olíu var úldið, 1 sýnishorn af
gaffalbitum var myglað, 1 dós af niðursoðnum fiskbúðingi var bólgm
(„bomberuð"), og 1 dós af niðursoðnum fiskbúðingi var ryðguð að
innan. Grænmeti: 2 sýnishorn af gulrófum voru maðkétin, 1 sýms-
horn af gulrófum skemmt vegna bórskorts, og 1 sýnishorn af niður-
soðnum gulrótum og 1 sýnishorn af niðursoðnum rauðrófum voru
bólgin (,,bomberuð“). Kakaóvörur: 2 sýnishorn af súkkulaðihúðuðu
munngæti voru þrá, 1 sýnishorn af súkkulaðistöngum var myglað.
Framh. á bls. 190.