Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 238
Viðbætir.
Læknaráðsúrskurðir 1951.
1/1951.
Borgardómarinn í Reykjavík hefur með bréfi, dags. 31. jan. 1951,
samkvæmt úrskurði kveðnum upp í bæjarþingi Reykjavíkur s. d.,
óskað umsagnar læknaráðs í málinu: E. K. V. M-son gegn borgar-
stjóranum í Reykjavík f. h. bæjarsjóðs.
Málsatvik eru þessi:
E. K. V. M-son bifreiðarstjóri, ... í Reykjavík, f. 2. september
1916, starfaði hjá Strætisvögnum Reykjavíkur á árunum 1944 og
1945, en það fyrirtæki var þá orðið eign Reykjavíkurbæjar. Á árinu
1945 veiktist hann og varð að hætta störfum 13. sept. þ. á. og hefur
síðan verið að mestu óvinnufær. Lýsir læknir hans ... sérfræðingur
í tauga- og geðsjúkdómum (í Reykjavík), veikindum hans á þessa
leið í vottorði, dags. 11. febr. 1948:
„Árið 1945 vann hann sem bílstjóri hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur.
Kveðst hann þá hafa ekið gömlum bíl, og hafi óloft frá vélinni
lagt inn í vagninn. Hafi farþegar iðulega kvartað um þetta.
E. hafði verið heilsugóður þar til 1945. í apríl það ár fór hann
að kenna óþæginda í höfði, og ágerðust þau, þar til hann af þeim
sökum varð að hætta störfum h. 13. sept. sama ár.
Hann hefur ekki losnað við þessi óþægindi síðan, og hafa þau nán-
ast staðið í stað. En kvartanir hans eru þessar: Höfuðverkur, eins
og höfuðið ætli að springa. Svimatilfinning, nánast sem þoka fyrir
augum, þegar verkur er verstur. Svefndrungi eða óeðlilega mikil
svefnþörf. Minnisleysi (vegna lélegri einheitingar hugans). Óeðlileg
viðkvæmni, sem brýzt út í ástæðulausum grátköstum. Aukin vanstill-
ing á skapsmunum. Höfuðverkurinn er misjafn, eykst við hristing og
alla áreynslu.
Ég hef fylgzt með heilsufari hans, síðan hann veiktist. Margendur-
tekin klinisk skoðun hefur ávallt reynzt neikvæð að öðru en því, að
blóðþrýstingur hefur reynzt frekar lágur (mældist 100/60 h. 7. þ. m.).
Sérstaklega skal fram tekið, að neurologisk skoðun er neikvæð. Mænu-
vökvi reyndist eðlilegur. Augnskoðun eðlileg. Blóðstatus eðlilegur.
Þvag' inniheldur ekki eggjahvítu, gröft né sykur.
Psykiskt er hann eðlilegur í framkomu, hægur og rólegur; hann
ber kvartanir sínar fram öfgalaust og án sérstakrar tilfinningasemi,
og þær eru ávallt þær sömu. Hann hefur ekki leitað læknis tiltakan-
lega þétt.