Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Page 31
29
Annað árið, sem landið er samfellt taugaveikislaust, og fyrsti ára-
tugurinn í sögu farsótta vorra, sem enginn deyr úr taugaveiki.
Læknar láta þessa getið:
ísafj. Ekkert tilfelli í héraðinu siðast liðin 14 ár.
Sauðárkróks. Taugaveikissmitberi (G. J-dóttir) er i héraðinu, en
rannsókn á saur hennar hefur ekki verið gerð síðustu 10—15 árin.
Hún hefur arthritis deformans coxae og er blind.
Keflavíkur. Hefur ekki orðið vart hér, síðan ég kom í héraðið 1942.
8. Iðrakvef (gastroenteritis acuta).
Töflur II, III og IV, 8.
S júklingafiöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl......... 5266 2395 4657 2753 3122 4937 3442 3587 3445 3983
Dánir ........ 7 6 9 5 7 5 8 3 2 3
Fór sínu fram að venjulegum hætti.
Læknar láta þessa getið:
Iiafnarfi. Allmörg tilfelli, greinilega flest mánuðina ágúst—nóvem-
ber. Aldrei illkynja.
Akranes. Kom nú fyrir alla xnánuði ársins, ekki frekar sumarmán-
uðina.
Borgarnes. Smávegis allt árið, en þó meiri um haustmánuðina.
Ólafsvikur. Stakk sér niður.
Keykhóla. Nokkur tilfelli, einkum í októbermánuði.
Bildudals. Fáein tilfelli skráð í 4 mánuðum ársins, flest í nóvem-
ker, öll væg. Allmiklu meira mun þó veikin hafa gert vart við sig en
skráð er.
Flateyrar. Stakk sér niður í júlí—ágúst.
ísafi. í meðallagi. Flest tilfelíin í sláturtíðinni október—nóvember,
aðallega á l—10 ára börnum.
Ögur. Nokkur tilfelli, einkum í ágiist og september.
Árnes. ÖIl tilfellin væg og aðallega ungbörn. Næg'ði að sjóða mjólk-
lna, nema hjá einu, sem fékk súlfaguanidín, með góðum árangxá.
Loskin kona er skráð, sem reyndist síðar með achylia gastrica.
Hólmavikur. Varð vart við og við allt árið. Vægur faraldur í nóvem-
ker. Auk þess veiktust 2 fjölskyldur, sennilega afleiðing af skemmd-
Uln svartfugli.
Hvammstanga. Örfá tilfelli. Auk þess heyrði ég orðróxn um lympu
með uppsölu og niðurgangi í septcmber. En aldrei var min leitað, og
enginn sjúklingur er þá skráður.
Blönduós. G,erði lítils háttar vart við sig, einkum síðara hluta sum-
arsins. Var yfirleitt vægt.
Sauðárkróks. Hefur stungið sér niður flesta mánuði ársins, en eng-
lnn faraldur að því og verið vægt.
Ilofsós. Örfá tilfelli.
Ólafsfi. Varð vart.
Balvikur. Skrásett tilfelli voru engin síðásta ársfjórðunginn.