Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 61
59
Fólki á aldrinum 14—29 ára, sem reyndist neikvætt við berkla-
prófið, var gefinn kostur á Calmette-berklabólusetningu. Voru alls
787 rnanns bólusettir á þenna liátt. Á heilsuverndarstöðinni í Reykja-
vík voru 2281 manns bólus :ir gegn berklaveiki. Voru það einkum
börn og unglingar. Úti um land hefur bólusetningin að öðru leyti
verið litið notuð, aðeins í sambandi við berklaveik heimili og þá sam-
kvæmt óslc og tilvísun héraðslækna.
Hin nýju photoröntgentæki hafa reynzt mjög vel. Eru þau stórvirk
og auðvelda mjög allar berklarannsóknir, þar sem þeim verður við
koniið. Voru 14734 manns rannsakaðir með þeim á þessu ári. Berkla-
yfirlæknir dvaldist erlendis um þriggja mánaða skeið á árinu. Starfaði
hann sem ráðunautur berklarannsóknardeildar Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, en deild þessi hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Sam-
kvæmt beiðni forstöðumanns þessarar deildar, dr. Carrol E. Palmer,
var ákveðið, að berklapróf þau, sem framkvæmd skyldu um haustið í
sambandi við hinar órlegu berklarannsóknir í unglingaskólum lands-
ins, yrðu gerð i samræmi við og samkvæmt ákvörðun berklarann-
sóknardeildarinnar. Var Sigmundur Jónsson læknir ráðinn til þess, og
tók hann til starfa í októbermánuði. Greiddi berklarannsóknardeild
Álþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hálf laun hans. 1. júlí var dr. med.
Óli P. Hjaltested skipaður yfirlæknir berklavarnarstöðvarinnar í
Reykjavík, en hann hefur starfað við stöðina s. 1. 10 ár.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. 3 nýir sjúklingar. í 2 tilfellum er ekki kunnugt um upp-
sprettu smitunarinnar að öðru leyti en því, að viðkomandi mun hafa
haft umgang við sjúklinga frá Vífilsstaðahæli. Kunnugt er einnig um
t tiifelli hilitis tbc., skrásett 1948, og varð ekki skýrt á annan hátt en
Þann, að um smitun frá sjúklingi frá Vífilsstöðum væri að ræða. í
febrúarmánuði lét berklayfirlæknir Mantouxprófa alla íbúa Hafnar-
fjarðarbæjar á aldrinum 7—30 ára og að því búnu calmettera þá,
sem reyndust neikvæðir. Byrjað var i skólunum og síðan teknir aðrir,
sem til náðist. Sýndi fólk yfirleitt áhuga og góðan skilning á málinu
°g mætti vel. Mantouxpróf var svo gert í haust á öilu skólafólkinu, sem
flest reyndist orðið jákvætt, og eftir nýár var byrjað að prófa aðra
bæjarbúa, sem calmetteraðir höfðu verið. Ekki er enn þá búið að
athuga, hve mörg % hafa orðið jákvæð við þessar aðgerðir.
Akranes. Á árinu aðeins skráðir 2 nýir sjúklingar. Ekki vitað um
heimilissmitun, en annar þeirra, 17 ára piltur, vann hjá föður sínum
a vélaviðgerðarverkstæði, ásamt fleirum.
Borgarnes. 1 nýr sjúklingur héðan, 16 ára stúlka, fannst við gegn-
lýsingu nemenda í Reykholti. Smitun ókunn. Fór að Vífilsstöðum.
Ólafsvíkur. Virðast nú þær skorður reistar, er dugi, ef árvekni eigi
brestur.
Búðardals. 40 ára kona, héðan úr þorpinu, fyrst skráð 1928 og aftur
1940, veiktist nú á ný, að því er virtist af þrálátu kvefi, en kvef gekk
hér um þær mundir. Er kvefið vildi ekki batna, athugaði ég sputum, og
1-eyndist það tbc+. Um þetta leyti veiktist og 9 ára sonur hennar og
fékk hilitis, en batnaði fljótt. Alllöngu síðan fékk hann pleuritis, fór
11 Landsspítalann og lá þar ahlengi, en er nú albata. Kona, 54 ára, úr