Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 261
259
oddsen, fund deildarinnar, samkvæmt 4. gr. laga um læknaráð, til
þess að gera grein fyrir afstöðu sinni að því, er tók til afgreiðslu
deildarinnar á málinu.
Hafði yfirlæknirinn ekkert að athuga við athugasemdir deildarinn-
ar varðandi svör hans, að undantekinni athugasemd við svari hans
við 4. spurningu sækjanda. Yfirlæknirinn tjáir sig hafa skilið þessa
spurningu svo, að spurt væri um, hvort líklegra væri, að innra op
leghálsgangs þrengdist fremur sama daginn sem fósturlát hefði orðið
eða nokkrum dögum síðar. Spurningunni svaraði yfirlæknirinn þann-
ig, að líldegra væri, að fósturlát hefði orðið nokkrum dögum áður
heldur en saindægurs, ef leghálsinn hefði þrengzt. Réttarmáladeild
skildi spurninguna hins vegar þannig, að spurt væri um, hvort líklegt
væri, að innra op leghálsgangs þrengdist, meðan umgetinn egghluti
væri enn í leginu, og í tillögu sinni svarar deildin spurningunni sam-
kvæmt því.
Tillaga réttarmáladeildar um
Ályktun læknaráðs:
I. Athugasemd við spurningar verjanda:
Ad 1) Ef fóstrið hefur ekki verið nema 1—2 mánaða, er hæpið
að tala um himnustungu. Ef kanni eða prjónn er rekinn upp í legið
á þeim tíma, þarf ekki að sprengja neina blöðru til þess að koma
af stað egglosi, heldur losnar eggið oft af blæðingu eða samdráttum
vegna ertingar á legslímhúð. Slík skemmd á eggi getur leitt til fóst-
urláts eftir einn eða fleiri sólarhringa.
II. Athugasemdir við spurningar sækjanda:
Ad 1) Sjá svar við 1. spurningu verjanda.
Ad 4) Nei, meðan nokkuð er eftir af egginu, er líklegt, að innra
op leghálsgangs þrengist ekki.
Ad 19) Atriði það, sem um er spurt, telur læknaráð eiga að vera
háð mati dómara og ekki sitt hlutverk að taka saman röksemdir
fyrir dómi. Læknaráð leiðir því hjá sér að svara þessari spurningu.
Ad 20) Sbr. svar við 19. spurningu.
Læknaráð telur ekki, að framhaldsrannsóknin haggi í neinu niður-
stöðum fyrri álitsgerða sinna.
Læknaráð færist undan að svara öðru en ákveðnum spurningum,
sem fram eru bornar.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 30. marz,
staðfest af forseta 4. apríl sem álitsgerð og úrskurður læknaráðs.
Málsúrslit. Sjá 4. mál.
4/1951.
Dómsmálaráðuneytið hafði með bréfi, dags. 11. apríl 1951, fram-
sent læknaráði bréf sækjanda, dags. 10. s. m., í hæstaréttarmálinu:
Akæruvaldið gegn J. S-syni o. f 1., þar sem hann óskar svars við
þremur spurningum varðandi málið. Forseti og ritari læknaráðs