Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 96
94
litidis sequelae, 1 hryggskekkju. Vart mun þetta standa nokkru barn-
anna fyrir þrifum. Heilsufar var annars mjög gott.
Hólmavíkur. (175). Skólabörn yfirleitt A7el hraust og lítið um kvilla.
Helztu kvillar auk tannskemmda: Kokeitlaauki 29, hálseitlaþroti 10,
beinkramareinkenni 8, hryggskekkja 9, sjóngallar 8, facies adenoidea 8,
asthma 2, heyrnardeyfa 1. Óþrifakvillar svipaðir og áður, nema hvað
lúsin er einna mest í hávegum höfð í Drangsnesi að þessu sinni.
Hvammstanga (133). Öll börnin vel fríslt og ágætlega útlítandi. 4
börn fremur lítil eftir aldri og grönn, en frisk og' fjörleg. Á engu barn-
anna fannst lús eða nit eða aðrir óþrifakvillar. Tannskemmdir fara
minnkandi. Rúm 70% barnanna í sveitunum höfðu alheilar og fallegar
tennur. Ástandið í þessu efni lakast á Hvammstanga. Flatil 1, floga-
veiki, 1 gómeitlaauki 7, hálseitlaþroti 5, sjóngallar 4, beinkramar-
merki 1.
Blönduós (188). Lúsin virðist vera að hverfa úr héraðinu, og var
mál til komið. Með sjóngalla voru 31, kokeitlaauka 18, rifjaskekkjur
6, hryggskekkju 2, eitlaþrota 4, lungnakvef 2, offitu 2, og hvarma-
bólga, blóðleysi, lieyrnardeyfa og hjartagalli fundust hvert um sig
hjá 1 barni. Líkamsgallalaus voru 37, eða um 20%. Heilsufar í skól-
unum var gott um námstímann.
Sauðákróks (253). Óþrifakvillar virðast nú fara vaxandi. Helztu
kvillar, auk þeirra, sem á skrá eru, voru: Eitlaþrota (flest aðeins
vott) höfðu 172, kirtilauka í koki 81, sjóngalla 15, blepharitis 12,
heyrnardeyfu 2, acne vulgaris 2, ichtyosis 2, scoliosis 1, rhachialgia 1,
cystitis 1.
Hofsós (112). Börnin yfirleitt hraust. Þó ber mikið á tannskemmd-
um og dálítið á stækkuðum kok- og nefkokseitlum. Lús og nit með
langminnsta móti, og er vonandi, að um varanlegan bata sé að ræða.
Ólafsfj. (167). Lítilfjörlegan eitlaþrota höfðu 29 börn, 25 höfðu
stækkaða kokeitla, 1 með hryggskekkju, 2 rangeygð, 2 höfðu albinot-
ismus og 1 offitu.
Dalvíkur (228). Börnin skoðuð á venjulegan hátt. Kvillar eigi meiri
en áður. Skólabörn gerast nú bráðþroskaðri en áður var, enda mun
nú raunverulegur skortur heima hjá þeim vera úr sögunni.
Akureyrar (1002). Barnaskólar utan Akureyrarkaup-
staðar (294): Hálseitlar 80, sjóngalli 33, hryggskekkja 8, deformitas
thoracis 3, psoriasis 1. Barnaskóli Akureyrar (708): Kokeitla-
stækkun 104, sjóngalli 30, hryggskekkja 20, nárakviðslit 8, naflakvið-
slit 9, beinkröm 10, offita 5, of mögur 5, heyrnardeyfa 4, flatfótur 38,
kláði 3, lús og nit að hausti 25, en að vori 12, neglur bitu að hausti
37, en að vori 18. Lýsisgjafir fóru fram í skólanum eins og undanfarin
ár. Þá starfaði ljósastofa skólans frá 14. janúar til aprílloka. Yfir þenna
tíma nutu 167 börn Ijósbaða, 96 stúlkur og 71 drengur. Tannlæknar
bæjarins og aðstoðarstúlka þeirra hafa starfað við skólann í vetur
4 tíma á dag. Tannskoðuð voru 404 börn, þar af 69 ineð heilar tennur.
Gert var við og fylltar 832 tennur, rótaraðgerð á 63 tönnum, dregnar
út 42 tennur.