Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 89
87
31. Morbi cutis varii.
Arnes. Pityriasis simplex capitis: Bati furðu fljótt við venjulega
nieðferð.
Hvammstanga. Dermatitis seborrhoica 3. Acne vulgaris 6. Psoriasis 2.
Vopnafi. Acne vulgaris 1 tilfelli.
32. Morbus Addisonii.
Hvammstanga. 32 ára gift kona. Mikil og vaxandi adynamia,
gastriskar og nervösar truflanir, hypotensio, brún skán á dorsum
bnguae. Almenn tonica komu að litlu haldi. Sjúkdómsgreining í fyrstu
allóviss, bæði hjá mér og síðar í Reykjavík. Fór síðast til Kaupmanna-
hafnar, og þar var sjúkdómurinn loks ákveðinn eftir alllanga athugun.
33. Morbus Basedowii.
Bíldudals. 3 sjúklingar, allt konur, 32, 36 og 47 ára. Allar höfðu
sjúkdóminn á allháu stigi og hafa haft hann að líkindum árum saman.
Hjá einni hafði sjúkdómurinn áður verið greindur. Ráðlagði ég þeim
óllum að leita lækninga á Landsspítalanum; fór ein þeirra þangað í
janúar og var þar fram á sumar, að siðustu ópereruð og útskrifaðist
við góða heilsu. Hinar 2 voru enn heima urn áramót.
Búða. Sendi á árinu 1 karlmann og 3 konur með þenna sjúkdóm til
Reykjavíkur. 3 sjúklinganna komu aftur með myxoedema og verða
nú að borða tablettae glandulae thyreoideae.
34. Morbus cordis.
Begkhóla. 1 telpa, 6 ára, með morbus cordis congenitus.
Bíldudals. 2 sjúklingar dóu úr þessum sjúkdóini. 6 sjúklingar með
veikina á mismunandi háu stigi, sem ég veit um. 81 árs kona fékk
hjarta-infarct og varð þungt haldin; rétti samt við og varð rólfær.
Blateyrar. Verður alltaf vart, einkum á eldra fólki.
Árnes. 74 ára kona með morbus cordis. Fullur bati með digitalis-
kúr.
Hólmavíkur. 4 sjúklingar, allt gamalt fólk.
Grenivíkur. 3 tilfelli.
Kópaskers. Angina pectoris: kona á áttræðisaldri hefur haft þenna
sjókdóm í nokkur ár og er illa haldin.
Vopnafi. 10 tilfelli.
Nes. Frekar algengur kvilli í rosknu fólki.
Búða. Angina pectoris: Sömu sjúklingar sem áður.
Vestmannaegja. Áberandi sjúkdómur á ýmsum rosknum mönnum,
konum og körlum, sem stundað hafa erfiðisvinnu á sjó og landi, oft
sainfara niiklum vökum og erfiði, þegar mikil aflabrögð voru. Nú
ey ekki slíku til að dreifa, því að alls staðar eru menn hér hættir að
vmna sólarhringum saman án hvíldar, eins og áður kom fyrir.
35. Myxoedema.
I'lategrar. 1 kona helzt við með thyreoideagjöf.
36. Nephritis acuta.
Árnes. 2 tilfelli. Bati við venjulega meðferð.