Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 39
37
maður var sóttur fram í sveit. Virðist mér það bera mjög góðan árangur
ásamt súlfalyfjum.
Sauðárkróks. Verður Iítið vart framan af árinu, en flest tilfelli eftir
inflúenzufaraldurinn. Enginn dáinn.
Hofsós. Nokkur tilfelli í börnum.
Dalvíkur. Banamein níræðrar konu.
Akureijrar. Gerði talsvert vart við sig suma mánuði ársins. I lang-
flestum tilfellum tókst að lækna sjúkdóminn með súlfa- og pensilín-
gjöf, en þeir, sem dóu, voru helzt ungbörn eða gamalmenni, þar sem
mótstöðukrafturinn var mjög lítill í upphafi sjúkdómsins.
Kópaskers. Öllum batnaði vel af súlfalyfjum.
Vopnafj. ÖIl tilfelli væg. Sjúklingunum batnaði fljótt af súlfalyfjum.
Seyðisfi. Gætti lítið. Batnaði fljótt og vel við súlfadíazín.
Nes. Nokkur tilfelli upp úr kvefi. Batnaði öllum fljótt og vel.
Búða. Flest tilfellin í sambandi við inflúenzufaraldurinn, hin upp
úr þungri kvefsótt.
Djúpavogs. Aðeins fá tilfelli.
Breiðabólsstaðar. Erfitt að greina lcveflungnabólgu með vissu, einkum
' byrjun, en þar sem nokkuð mikið virðist muna um hvern dag, sem
dregið er að gefa súlfa eða pensilín, gef ég lyfin strax, ef hiti fer upp
fyrir 39°, þó að greiningin sé þá á stundum ekki alveg óyggjandi. 2
s.júklingar, annar á níræðis-, en hinn á tíræðisaídri, munu hafa látizt úr
kveflungnabólgu, þrátt fyrir súlfa- og pensilíngjöf.
Víkur. Tveggja mánaða barn með pneumonia catarrhalis duplex, sem
virtist penicillin-resistent, en batnaði þó.
Vestmannaeyja. Súlfa og pensilín reyndust Arel.
Stórólfshvols. Allmargir sjúklingar. Fullur helmingur af þeim, sem
skráðir eru, voru börn innan 5 ára aldurs. Langflest tilfellin komu fyrir
suniarmánuðina á þeim tíma, þegar inflúenzan gekk yfir, og fengu
Hestir lungnabólguna upp úr henni. Venjulegast batnaði hún tiltölu-
lega fljótt við súlfa- og pensilíngjöf.
Keflavíkur. Sennilega óvenjulítil brögð að kveflungnabólgu á árinu,
ea hún fór heldur í vöxt, er á leið, og 1 gamall maður dó úr henni.
2- Um taksótt:
Hafnarfi. Að taksótt kvað injög lítið.
Akranes. Aðeins 1 tilfelli, í september.
Ólafsvíkur. Lét nokkuð til sín taka.
Begkhóla. Örfá tilfelli. Bötnuðu öll við súlfalyf.
Hólmavíkur. Ekki vart.
Sauðárkróks. 1 tilfelli skráð.
Hofsós. Örfá tilfelli. Ein 79 ára gömul kona dó, var alveg að dauða
^omin, er læknis var leitað.
Akuregrar. Mjög lítið um taksótt. Um lækningu þcssa sjúkdóms má
segja hið sama og um getur við kveflungnabólgu.
Vopnafi. Gerði ekki vart við sig.
Nes. Aðeins 1 tilfelli, vægt.
, Búða. 2 tilfelli eftir vos og hrakninga. Súlfadiazín hafði mjög lítil
ahrif, en pensilín bætti um fljótt og vel.