Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 136
134
sæmilega vel áfram. Var húsið komið vel undir þak fyrir haustið, og
síðan hefur verið unnið þar að múrhúðun og ýmsu öðru, en talsvert
langt mun það þó eiga í land, að lokið sé smíði hússins.
Grenivíkur. Enginn sjúklingur lag'ður inn á sjúkraherbergin á ár-
inu.
Seyðisfi. Engin breyting á rekstri sjúkrahússins. Aðsókn alltaf svip-
uð. Rekstrarhalli fer hækkandi með hverju ári. Hið síhækkandi kaup-
gjald veldur þar mestu um. Hjúkrunarkvennaskortur er að verða al-
vörumál hér sem annars staðar.
Nes. Hafin bygging vandaðs sjúkrahúss með 23 sjúkrarúmum.
Verður mikil breyting til hins betra, er það verður komið upp. Von-
andi, að þessar framkvæmdir gangi að óskum og ekki líði alltof mörg
ár, þar til starfræksla getur hafizt.
Djúpavogs. Læknishúsið gert upp á árinu og gerbreytt innréttingu.
Er húsið nú skemmtileg't, en betur hefði mátt ganga frá því en gert
var, svo að ekki rynni inn um alla glugga, ef dropi kemur úr lofti.
Sjúkrastofurnar voru nokkuð notaðar á árinu, þó að slíkt sé naumast
gerlegt, þar sem enga húshjálp eða hjúkrunarhjálp er að fá.
Vestmannaeyja. Sjúkrahús bæjarins yfirfullt, ég tala ekki um á
vertíð, þegar 6—7 þúsund sjómanna eru hér á miðunum og sækja
hingað læknishjálp. Ófremdarástand í sóttvarnarmálum sama og alltaf
hefur verið, síðan ég kom hingað, nema fyrstu ár sjúkrahúss Vest-
mannaeyja. Ekkert herbergi til einangrunar, hvað sem á liggur. Engar
breytingar á sjúkrahúsinu á árinu. Ný röntgentæki voru tekin í notk-
un, gefin af iðnaðarmönnum fyrir 4 árum. Var ekki hægt að nota
þau fyrr en nýi rafstraumurinn kom. Ágæt tæki.
Keflavíkur. Unnið er að byggingu sjúkrahússins, en seint gengur,
og vantar nú fé til að ljúka við húsið og kaupa á öllu innan húss.
Kvenfélag Keflavíkur sýndi mikla rausn og gaf mikla fjárhæð til
kaupa á röntgentækjum, sem nú eru í pöntun. Svo virðist sem sam-
tök hinna 7 hreppa, sem að þessu standa, séu ekki mjög hugkvæm
um fjáröflun, og er það illt, að hús, sem jafnlangt er komið, skuli
ekki ná því að verða fullgert. Margir einstaklingar hafa gefið rausn-
arlegar gjafir til sjúkrahússins, t. d. ekkja ein 10 þúsund krónur, en
slík stórfyrirtæki verða ekki reist og starfrækt fyrir fé einstaklinga.
Þar verða forvígismenn sveita- og bæjarfélaga að beita sér fyrir sam-
eiginlegri almennri fjáröflun og sjá sóma sinn í, að þetta hérað verði
ekki lengur eftirbátur annarra um þetta mannúðar- og menningar-
mál, jafmikilla verðmæta og hér er aflað og unnið úr.
B. Sjúkrahjúkrun. Sjúkrasamlög. Heilsuvernd.
Hjúkrunarfélög.
1. Hjúkrunarfélagið Líkn í Reykjavik gerir svofellda grein fyrir
störfum sínum á árinu:
Árið 1949 hafði Hjúkrunarfélagið Likn 8 hjúkrunarkonur í fastn
þjónustu sinni fyrra helming ársins, en 9 seinna helming ársins. Störí-
um þeirra var hagað þannig, að 2 þeirra störfuðu við heimilishjúkrun,
4 við ungbarnaverndina og 2 við berklavarnarstöðina fyrri 6 mánuoi