Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 27
25
Bíldudals. Viðloðandi allt árið, mjög útbreiddur faraldur, en vægur.
Gekk sumarmánuðina, einkum þó í ágúst, og tók aðallega börn.
Flateijrai-. Viðloðandi allt árið, nema í apríl, létt og fylgikvillalaus.
ísafí. Með meira móti, en væg, nema haustfaraldurinn í nóvember;
lagðist hann mjög þungt á ungbörn, og dó 1 úr lungnabólgu upp úr
veikinni.
Ögur. Faraldur í ágúst og september.
Árnes. I júlí og ágúst á víð og dreif, injög væg.
Hólmavíkur. Með meira móti allt árið. Faraldur í júní—júlí og des-
ember.
Hvammstanga. Engin tilfelli skráð fyrr en i júní; úr því nokkur til-
felli mánaðarlega. Smáfaraldur í júlí og ágúst samfara kverkabólgu.
Blönduós. Með meira móti og samfelldara, einkum sem eftirhreytur
inflúenzunnar snemma á árinu, en skrásetningin er nokkuð á reiki
milli þeirra, og fjöldi tilfella hefur ekki komið til skrásetningar, því
að lælcnis er oft ekki leitað, nema talsverð brögð séu að þessum las-
leika eða hann með langvinnasta móti. Mjög lítið var um fylgikvilla,
enda oft gefin súlfalyf, einkum krökkum, áður en Iungnabólguein-
kenni eru komin fram.
Sauðárkróks. Verður að venju talsvert vart allt árið, aðallega þó
seinna hluta ársins. Eitthvað af tilfellunum í marz tilheyrir að lík-
indum inflúenzufaraldri, sem þá er í uppsiglingu.
Hofsós. Með minnsta móti, enginn verulegur faraldur.
Ólafsfj. Nokkur tilfelli.
Ðalvíkur. Faraldrar í júlí, nóvember og desember. Slæðingur allt
árið.
Akureyrar. Meira um kvefsótt en venjulega, einkum 4 síðustu mán-
uði ársins, svo og í janiiar. Ekki hefur verið mikið um þung tilfelli
uf kvefi, en mjög þrálátt hefur það verið, svo að margir hafa gengið
með það svo mánuðum skiptir.
Grenivíkur. óvenjulega mikið um kvefsótt alla mánuði ársins, þrá-
lát í sumum.
Kópaskers. Mun hafa verið viðloðandi allt árið, og gefa farsótta-
skýrslur mjög óljósa hugmynd um útbreiðsluna. Fólkið í dreifbýl-
mu leitar ekki til Iæknis með kvefsótt, nema hún sé sérstaklega þung,
eða tilviljun gefi því gott færi á að ná til læknis. Mest voru brögð að
kvefsóttinni i júlí. Byrjaði faraldurinn á Raufarhöfn, en breiddist út
á samkomu í Öxarfirði. Veiktust margir mikið og voru lengi að ná
sér. Það, sem eftir var af árinu, varð alltaf öðru hverju vart þungra
kvefsóttartilfella.
Vopnafj. Verulegur faraldur gekk ekki nema vormánuðina apríl—
júní. Gekk þá kvefsótt um allt héraðið. Nokkrir sjúklinganna fengu
adháan hita. Langflestir þó með kvefeinkenni og hósta, en litinn eða
engan hita.
Seyðisfj. Eins og alltaf áður er kvefsóttin tíðasti kvillinn, nokkuð
jafnt dreifð yfir allt árið og án fylgikvilla.
Nes. Allt árið. Má kalla faraldur frá júlí til ársloka, þó að nokkuð
drægi úr í október. Fylgikvillar fáir. Nokkur börn fengu otitis media.
4