Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 143
141
Ólafsvíkur. Sjúkrasamlag starfar í Neshreppi, Ólafsvíkurhreppi og
Breiðuvíkurhreppi, en ekki í Fróðárhreppi né Staðarsveit.
Búðardals. Aðeins eitt sjúkrasamlag í sýslunni, Sjúkrasamlag Lax-
dæla. Iðgjald 96 krónur á ári. Hagur sjúkrasamlagsins hefur verið
heldur þröngur undanfarið.
Reykhóla. Sjúkrasamlög engin í héraðinu.
Flateyrar. Áhugi almennings fyrir heilsugæzlu, og þá sérstaklega
kvenþjóðarinnar, kom berlega fram í sambandi við fyrr nefnd röntgen-
tækjakaup til sjúkraskýlisins. Sendu kvenfélögin sjóðnum myndarlegar
f.járgjafir til kaupanna, og sparisjóðurinn lagði til þeirra kr. 2000,00,
en Asgeir Guðnason kaupmaður gaf kr. 300,00 á 30 ára afmæli verzl-
unar sinnar; auk þessa greiddi svo ríkið framlag til kaupanna í sama
hlutfalli og þátttaka þess var í byggingu skýlisins. Sami sjóður hélt
uppi ljósbaðastarfsemi í skýlinu á sama hátt og í fyrra, og nutu um
50 manns baðanna fyrir 75 aura hvert bað. Hjúkrunarkona sú, sem
starfað hefur í Súgandafirði undan farin ár af dugnaði og við al-
niennar vinsældir, sagði upp starfi vegna ágreinings um kjör. Stóð
í pexi um þetta nokkra hríð, en svo fór hún. Kona skólastjórans á
staðnum, sem er lærð hjúkrunarkona, tók við starfinu. Fór starf-
semi þessi fram með sama hætti og undanfarin ár, en sérstök greinar-
gerð er ekki fyrir hendi. Ljósböð eru starfrækt í þorpunum á sama
hátt og verið hefur til mikilla heilsubóta mörgum veikluðum börnum.
Heilsugæzlustarfsemi er sinnt, svo sem efni og aðstæður leyfa. Eftir-
lit með lifnaðarháttum og líðan vanfærra kvenna er nú orðið fastur
liður í starfinu og samvinna góð. Fylgzt er með þroska ungbarna
fyrsta æviárið, eftir því sem við verður komið. Sjúkrasamlög störf-
uðu í öllum hreppum héraðsins á sama hátt og síðast liðið ár.
Iðgjöld voru ekki hækkuð á árinu.
Ögur. Eins og áður starfa sjúkrasamlög í 4 hreppum af 5.
Hesteyrar. Sjúkrasamlög starfa enn í báðum hreppum héraðsins,
°g er hagur þeirra góður. Læknisvitjanasjóðir eru einnig starfandi.
Árnes. Engin hjúkrunarkona eða hjúkrunarfélög. Læknisvitjana-
sjóður nýstofnaður, en reikningar óuppgerðir. Sjúkrasamlag starf-
andi.
Hvammstanga. Sjúkrasamlög starfandi í 6 hreppum af 8, eins og
áður. Þeir 2 hreppar, sem ekki hafa sjúkrasamlög, fundu enga hvöt
hjá sér til breytinga í því efni.
Blönduós. Sjúkrasamlög bættust 2 við á árinu, í Blönduóshreppi 1.
júli og i Engihlíðarhreppi 1. október. Hafði samlagsstofnun verið felld
I báðum þessum hreppum, er allsherjaratkvæðagreiðslan fór fram
um það, en var nú samþykkt svo að segja samhljóða. Eru þá sam-
lög i 6 hreppum sýslunnar af 10. Eftir eru Torfalækjarhreppur, Vind-
hælishreppur, Skagahreppur og Höfðahreppur, en í hinum síðast
nefnda er málið í undirbúningi, enda hefur verið þar talsverð óánægja,
einkum meðal aðflutta fólksins, yfir því að hafa ekki samlag. Sam-
lögin hafa gefizt vel og orðið vinsæl, þótt skiptar væru skoðanir um
þau í byrjun. Afkoma þeirra á árinu hefur verið sæmileg. Hjúkrunar-
félög eru engin í héraðinu.