Andvari - 01.01.1973, Blaðsíða 189
ANDVAHI
BRÉF TIL FINNS MAGNÚSSONAR
187
meðfylgjandi Skímir samt margt annað
höfðinglegt og ástsamlegt. Sömuleiðis hcfi
eg meðtekið frá ykkur, hæstvirtu félags
forstjórar og bræður, bréf af 4. maí og
annað frá 27. september 1831, hvert síð-
ara mér barst fyrst í höndur þann 8.
janúar næstl., með innlögðum áskriftar-
blöðurn til sögukaupa, og hefir mér svo
lítið sem ekkert ágengt orðið, já miklu
minna en eg hefði viljað, að fá subscri-
benta, er sjá má af innlögðu blaði, bverja
alltof ávaxtarlitlu tilraun eg auðmjúklega
bið að ei misvirðið. Sjálfur er eg peninga-
laus, svo þótt viljann ei vanti, þá er hann
ckki einhlítur. Samt langar mig til að
láta skrifa nafn mitt fyrir 1 exempl. af
ársriti því, er félagið ætlar að útgefa, nl.
Nordisk Tidsskrift for Oldkyndigbed,
hvað eg hér mcð hefi þá æru að tilkynna,
þar gleymzt mun hafa að innleggja sér-
ílagi áskriftar blað til þessarar ritgjörðar.
— Að eg tck að mér þá djörfung að víkja
útaf reglurn að skrifa þetta yður einungis,
en ekki hr. prófessori Rafn ásamt, bið eg
yður auðmjúklegast afsaka mín vegna
við hr. prófessorinn, og sömuleiðis bið
eg velnefndan prófessor Rafn umlíðingar
til næstkomanda sumars, þá eg vona mig
megnugan um að sýna honum skil fyrir
einhverju af því mikla, er hann hjá mér
á, því hrekkir ganga mér ckki til, þó
tregða sé á borguninni.
Meðfylgjandi ættartiiluskræðu hið eg
yður forláta, þar ci hcfi neitt annað fyrir
hendi, cr cg gæti mér í hug leitt, að yður
geðjast kynni. En þar eg trcysti yðar marg-
reyndri góðscmd, að taka munið viljann
fyrir verkið, áræðst eg að láta liana fara
heldur en ekkert.
Næstliðið sumar var í Norðurlandi yfir
höfuð í bctra lagi með grasvöxt á túnum
og valllendi, en votengi brugðust víðast.
Nýting heyja almennt góð. Haustið hlýtt,
og vctur ei með jafnaði né til lengdar
frosta né snjóasamur, en veðrátta þó
óstöðug og stormasöm með jafnaði, eink-
um gjörðu suðaustan stormar tjón mikið
á húsum og heyjum á nokkrum bæjurn
hér í sýslu síðustu daga kirkjuársins.
Kvillasamt víða af líkri veiki og sagt er
gengið hafi i Danmörku í haust, en fáir
deyja úr þeirri sótt. Þann 1. þ. m. sál-
aðist sá góði mannvin ljúfmennið Þor-
lákur prestur Thorgrímscn á Auðkúlu,
og er hann mörgum harmdauður.
Að eg ckki lengur mæði yður með létt-
meti þessu, enda eg blaðið með forláts og
velvirðingarbón og vil jafnan finnast
yðar hávelborinheita
þénustuskyldugur
elskandi vinur
Elallgrímur Jónsson.
Sveinsstöðum, 6. ágúst 1932.
I Iæstvirti hr. prófessor!
Yðar að vanda elskulega og hæstvirta
bréf af 11. maí og þar með fylgjandi
Skírnir o. fl. þakka eg ástskyldugast. En
af því bréfi yðar rnerki eg, að þér ekki
hafið fengið frá mér það síðasta bréf, er
cg skrifaði yður með póstskipinu í vetur,
hverju fylgja átti Ættartöluskræða í 4to,
og þótti mér illa farið. En máske það
kunni enn að komast til lagfæringar, þó
óvænlega áhorfist.
Þér minnizt 'þess í yðar straxnefnda
elskulega bréfi, að þér minna vegna hafið
í hyggju að koma Prestatals skruddu
minni á framfæri — mér skildist til prent-