Andvari - 01.01.1973, Blaðsíða 133
ANDVAItl
BRÉF TIL GUÐMUNDAR FINNBOGASONAR
131
Fort de Giromagny
prés Belfort
4ða Des. [1913]
Kæri Guðmundur!
Bókin okkar kom út þann 29da síð.
mán.; þér voru send samdægurs þrjú
eintök, og eitt öllum þeim sem nefnd-
ir voru í bréfi þínu; eintakið til Berg-
sons var líklegast óbundið, þó veit eg
það óglöggt, en þú mátt ekki árnæla
mig; þú veizt ckki hvað mér er erfitt
núna í hcrnum að annast urn nokkurn
skapaða[n] hlut fyrir utan ban[n]settu
vitleysurnar sem við erum nú bundnir
við.
Mér þótti Alcan ekki ör; jeg er rjett
búinn að skrifa lionum hvort hann geti
ckki sent þér fleiri eintök; jcg hef sjálf-
ur ekki fengið nema tvö; um leið bið
jeg hann að geyma handa okkur allar
greinir og upplýsingar um bókina í blöð-
unum.
Eg hef séð greinina hans Blanchc; hún
er fjarska góð og glæsileg, en karlinn
skyldurækni hcfði getað nefnt mig, ef
hann mætti vera svo lítillátur.
Eg vona að þér gangi vel í öllu, og
að heyra um það bráðum. Mér líður illa;
alltaf cr talað um að senda mig til
Parísar, en ekkert verður af því; svo hér
dvel eg á meðan, hcf einn klukkutíma
á dag til að lesa og skrifa, og þá eina
stund verð cg að kaupa með því að ganga
tvær niílur ofan í bæinn Giromagny (þar
sem eg hef leigt herbergi) og t\’ær mílur
upp aftur í öllum Guðs storinum og rign-
ingum. Best er að eg þegi um það, og her-
lífið yfir höfuð.
Vertu blessaður og sæll!
Þinn
André Courmont.
Gefðu ktæðju mína öllum vinum og
kunningjum.
eintakið til Bergsons, Guðmundur tileinkaði
franska heimspekingnum Henri Bergson hina
frönsku útgáfu doktorsritgerðar sinnar, en Guð-
mundur var nemandi lians í París 1908-09.
Fort de Chévremont
prés Belfort
18da jan. [1914]
Kæri vinur!
Mjög glaður var eg að fá bréf þitt um
daginn, og vænt þótti mér að frétta hvað
þýðingin líkar þér vel; hún hefur, hvað
sem öðru líður, gert okkur að fastari og
dýpri vinum; mestur er sá árangur.
Viðvíkjandi prentvillum sagðist Alcan
varla nenna að prenta „errata" og bæta í
bækurnar; honum fundust þær, prent-
villurnar, lítilfjörlegar allar; en sjá mundi
hann um að alt væri leiðrjett í annari út-
gáfu, ef hún yrði til, scm Guð gefi oss!
Af greinum um bókina hefir ekkert
mikilsvert komið enn þá, bara lýsingin
sem jeg skrifaði er komin út í tveimur
blöðum í Genéve, og í einu (el Correo)
í Madrid. Ekki býst eg við að þú viljir
fá slík smáræði; bíðum eftir meira og
betra!
Nú líður mér sæmilegar hér; mér var
nýlcga gefið lcyfi til miðnæt[t]is á hverj-
um dcgi; eg hef, eins og þú veist, leigt
hcrbergi í þorpinu; svo get eg lesið og
unnið (ekki síst þvegið mér) á hverju
kvöldi frá 514 til 12.
Fjarska kalt er nú veðrið; ís og snjór
á öllu og eilífur stormur; það minnir á
ísland, nema hvað kuldinn smýgur sig
inn í mann með þeirri snild sem hann
hefur ckki lært cnn hjá ykkur; Islend-
ingurinn sem nú er í París (Sigurður
Jónsson, fyrrverandi lærisveinn minn í
Fláskólanum) segist kveljast af kulda!