Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Síða 92
ana, sem svo eftir athugun, ef til vill meÖ sérfræöingum, gefa
skýrslu um þau til ráðsins. Með þessum hætti fær sami mað-
ur samkomu eftir samkomu til athugunar samskonar mál.
Stundum eru honum þó fengnir meðráðamenn (rapporteurs
adjoints) tveir, og er þeim þá stundum öllum beinlínis falin
lausn málsins, t. d. fjárhagsmál Ungverjalands 1924. þess-
konar þriggja manna nefnd fær þá stundum umhoð ráðsins
til að gera allt, sem það liefði mátt gera. — Um fundarmálið
gildir sama og um fundarmál þingsins. Alit og skýrslur eru
prentaðar og sendar fulltrúum venjulega 48 stundum áður
en viðkomandi mál kemur til umræðu. Þær þarf ekki að lesa
upp, að tillögum undanteknum, nema óskað sé.
7. Fundir ráðsins eru venjulega lialdnir i heyranda hljóði,
en það getur þó brugðið af þeirri reglu, og jafnan skal fund-
ur vera fvrir luktum dyrum, ef hann varðar einstakan mann,
t. d. kjör framkvæmdarstjóra. Umræður um dagskrá, birting
trúnaðarmála og byrjunar-umræður um mál, sem þykir ó-
Iieppilegt, að komizt til vitundar almennings, fara einnig
fram á lokuðum fundi. Skrifstofan heldur gerðabók. Skulu
fulltrúar liafa athugað ræður sínar ákveðnum tíma eftir að
þeir hafa fengið þær. Fundargerðir eru venjulegast birtar í
.Tournal Official handalagsins, en ráðið getur þó ákveðið að
geyma þær óhirtar á skrifstofunni.
8. Eftir 1. mgr. 5. gr. sm. þarf einróma samþykki fulltrúa
til þess, að lögleg ákvörðun (décision) verði gerð á fundum
ráðsins, nema sáttmálinn eða aðrar heimildir láti öðruvísi
um mælt. Astæður fvrir þessari reglu eru hinar sömu sem
sagt var um þingið (11. gr. III. 6.).
Undantekningar frá þessari reglu eru hæði í sjálfum sátt-
málanum (A) og í öðrum heimildum (B).
A. Undantekningar samkvæmt sáttmálanum eru þessar:
1. Um „matters of procedure“ gildir sama regla, samkvæmt
2. mgr. 5. gr. sm„ sem um þingið (sjá yfir höfuð 11. gr. III. 6.
A. 1.), þar undir reglan um skipun rannsóknarnefnda. Regl-
an um „matters of procedure“ er endurtekin í 9. gr. þingsk.
ráðsins. Ráðið verður að skera úr vafa um það, hvað sé „mat-
ters of procedure", með samsvarandi liætti sem þingið. Al-
mennt þarf að eins einfaldan meiri hluta um þessi mál, en
undantekningar eru gerðar í 14. gr. þingsk. um afbrigði frá
þingsköpum og um breytingar á þeim. Þarf hér % atkvæða.
2. Þegar ráðið gerir skýrslu um mál samkvæmt 6. og 7. mgr.
15. gr. sm„ þá eru ekki talin með atkvæði aðilja sjálfra.