Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Síða 108
104
8. Samgöngumáladeild (section des communications et du
transit). Þar starfa 14 manns. Hún aðstoðar samgöngumála-
stofnun bandalagsins og' nefndir eða milliríkjastefnur, sem
með þessi mál fara að tilliutun bandalag'sins, svo og 2. nefnd
þingsins, að svo miklu leyti sem þessi mál koma til liennar.
9. Heilbrigðismáladeild (section d’hygiéne). Þar eru 40
starfsmenn. Þessi deild aðstoðar heilbrigðismálastofnun
bandalagsins og' framkvæmir álvktanir hennar. Hún gefur og
út ýmsar skýrslur um farsóttir og' alþjóða heilbrigðisskýrslur
áirlega (annuaire sanitaire international).
10. Deild fyrir menntamál og menningar og fgrir milliríkja-
skrifstofur (section de coopération intellectuelle et des bure-
aux internationaux). Deild þessari stjórnar einn undirfram-
kvæmdarstjóranna með sérstakri skrifstofu, þar sem starfa 3
menn. í deildinni eru annars 8 starfsmenn. Þessi deild aðstoð-
ar nefndina til samvinnu um menningu og menntamál og
aðrar nefndir, sem eru i sambandi við hana. Hún skal og ann-
ast sambandið við liinar ýmsu milliríkjaskrifstofur, sem
Þjóðabandalagið hefur tekið yfirstjórn á, sbr. 1. mgr. 24. gr.
sjn., og gefur út skýrslur um störf þeirra stofnana, sem hún
vinnur fyrir.
ll.Stjórnmáladeildin (section politique). Einn framkvæmd-
arstjórinn er forstjóri þessarar deildar, með skrifstofu, þar
sem vinna 2 menn. Deildin, sem annars er skipuð 12 mönn-
um, á að fylgjast með því markverðasta, sem gerist i stjórn-
málum, þar á meðal deilumálum einstakra ríkja, og aðstoðar
sérstaklega 6. nefnd bandalagsþingsins.
VI. Þjóðabandalagið hefur, auk áðurnefndra rita, allmikla
bókaútgáfu með höndum. Meðal rita þessara má nefna:
Journal Official, mánaðarrit með skýrslum um gerðir ráðs-
ins, með fylgiskjölum, á frönsku og ensku og með viðbót með
skýrslu um gerðir þingsins (Actes de l’Assemblée).
Monthly Summary, mánaðaryfirlit um störf bandalagsins,
gefið út á 6 málum.
Series of Treaties, safn milliríkjasamninga, sem skrásettir
eru og birtir samkvæmt 18. gr. sm.
Upplýsingadeild skrifstofunnar gefur þar að auki út smám
saman fræðirit lianda alþýðu manna um bandalagið og ein-
stök störf þess. Svo eru eftir liendinni gefnar út skrár jdir
rit þau, sem bandalagið hefur gefið út og fæst hún ókeypis
eftir beiðni.
VII. Yfirlitið um einstakar greinir og deildir skrifstofunnar