Hlín - 01.01.1958, Side 63
Hlin
61
sem rykið undir fótum hans. — En það er íarið að koma í
ijós, hversu ótalmargt hið fúna og feyskna í mannfjelag-
inu hefur fallið og er nú að ifeykjast burt frá storminum
mikla, og þegar loftið verður aftur heiðskírt mun sjást,
hversu raunar er kominn nýr himinn og ný jörð. — En
það er ekki oss mönnunum að 'þakka, sem með syndum
vorum og eigingirni höfðum leitt yfir oss það ástand, sem
svo var spilt og ilt, að afmá varð með slíkum fellibyl og
stormviðri. — En það er Guði að þakka, sem lætur storm-
bylinn framkvæma orð sitt. — Og það fyrirheit höfum
vjer, að á eftir storminum komi logn, því eins og segir í
sálmi Davíðs (107): „Hann breytti stormviðrinu í blíðan
blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar."
Stormarnir og stríðið eru gefin til þess að herða oss,
gera oss lífhæf nú og til eilífðar. — Sá maður, sem reyndur
er í stormum lífsins, vex stórum í stormviðrinu, þ. e. a. s.
ef hann hefur verið með Guði í storminum og Guð með
honum. — En stormana þolir enginn, nema sá sem treystir
Guði og heyir stríðið við stormana í Jesú nafni. — Og það
er einmitt í stormunum, að trúin styrkist, verður máttug,
voldug, karlmannleg trú. — Oss hættir einatt við að fara
með trú vora eins og væri hún einhver vesalingur, og
beita henni aldrei öðruvísi en hálfkjökrandi.
Vjer þurfum stormanna með. — Strengir sálna vorra og
manngildis eru slappir og óþandir. — Þjer hafið sjeð
hljómmeistara strengja strengi fiðlunnar — einkum nýja
strengi og óreynda. Hann þenur strengina fast, snertir
hljómlykilinn á slaghörpunni til samanburðar, og hættir
ekki að þenja strengina fyr en þeir samstilla slag-
hörpunni. Þá fyrst dregur listamaðurinn bogann um
strengina og fiðlan ómar og veinar, hlær og grætur í
höndum meistarans eins og mannssál, sem titrar af tign-
ustu kendum.
IÞað var eitt kvöld, er Ole Bull Ijek á fiðlu sína í
Boston. — Hinn mikli salur skalf fyrir lófaklappi aðdá-
andi mannfjöldans. — Ole Bull hóf fiðlu sína svo hátt á