Hlín - 01.01.1958, Qupperneq 125
Hlin
123
SNJÓFLÓÐIÐ Á SEYÐISFIRÐI
18. lebrúar 1885.
(Við erum á skemti&ön&u og spjöllum um daéinn og veginn, þá
staldrar vinkona mín alt í einu við og segir: „Já, í dag er 18. íebrú-
ar. — Þá minnist jeg ætíð atburðar, sem skeði fyrir 73 árum á
Austurlandi — Átakanlega minnisstæður dagur, sem jeg var æf-
inlega mint á með sjerstökum hætti í uppvexti mínum á Seyðis-
firði, nefnilega Snjóflóðið mikla 1885.“ — H.
Það var snemma morguns, á Oskudaginn, 1885. — Fólkið var
að koma á fætur, sumir enn í rúmunum, að það heyrðist voða-
legur brestur, og á einu augnabliki sprakk ofan úr Bjólfinum,
ægilegt snjóflóð, sem ekki hefur komið þar annað eins, hvorki
fyr nje síðar. — Menn höfðu lengi óttast um veturinn, að eitt-
hvað hlyti að koma fyrir, en ekki gert sjer í hugarlund að það
yrði svona ægilegt. — Það hafði þá snjóað látlaust í þrjár vikur,
í logni mest.
Þarna fórust 25 manns, flest ungt og dugmikið fólk á besta
aldri, og margir, sem þó komust af, mistu heimili sín, því bygð-
in var þá mest uppi í brekkunum rjett fyrir neðan við þetta
tignarlega, risafjall, Bjólfinn. — Fólkinu þótti þar falleg húsa-
stæði, en athugaði ekki hættuna.
Foreldrar mínir höfðu einnig bygt sjer hús á þessum hættu-
stað, og það eyðilagðist, en þau, og við börnin: Tveir synir, ann-
ar 7 ára, hinn 4 ára, og mig, á fyrsta ári, sakaði ekki. — Við
urðum svo að búa hjá frændfólki okkar, þangað til við eignuð-
umst heimili að nýju, en það var á öruggum stað. — Síðan hef-
ur aldrei verið bygt aftur á þessum stöðvum.
Þetta var mikið skarð, í þetta þá svo fámenna bygðarlag.
Þennan atburð bar þá upp á Öskudaginn. — Sagt var að ein
kona, sem af komst, og átti mörg börn, hefði aldrei leyft þeim
að hafa um hönd „öskupoka“ að leik, eins og þá var og er enn
siður. — Fánar voru dregnir í hálfa stöng í 25 ár til minnis
um þennan hryllilega atburð, en það var ógleymanlegt þeim,
sem af lifðu.
Móðursystir mín, Guðrún að nafni, fórst þarna, og hennar
maður, Valdimar Blöndal. Þau voru bæði ung og efnileg. —
Hann var þá bókhaldari við verslun Zöllners, mikilhæfur, fjöl-
gáfaður og dugmikill, stofnaði kvöldskóla fyrir ungt fólk og
starfrækti hann, stofnaði söngfjelag, og var sjálfur söngstjóri,