Hlín - 01.01.1958, Blaðsíða 154
152
Hlín
Æ, það eru svo mörg verkefni, sem mjer finst að bíði mín,
og sem mig langar til að verða einhverntíma manneskja til að
reyna að leysa.
Jeg er nýbúin að eignast góða saumavjel, hún gengur fyrir
rafmagni og getur unnið alt mögulegt. — Gallinn er aðeins sá,
að jeg þoli ekki að sitja nema augnablik í einu. — E. G.
Úr Bárðardal 1. maí 1958: Hjeðan er fátt að frjetta. — Unga
fólkið, sem er fjarverandi á vetrum, er nú að tínast heim, svo
nú fer að hfna yfir heimilunum. — Fjelagslíf er lítið á vetrum
vegna mannfæðar og langræðis. — Helst eru það húsmæðurnar,
sem eru að reyna að hafa einhverskonar „klúbba“, og koma
saman af 1—4 bæjum með handavinnu sína, og látum við þá
ekki snjó eða ófærð aftra okkur, en spennum. á okkur skíðin og
höldum oftast okkar áætlun, en því aðeins að bændurnir sjeu
þessu hlyntir og styðji það beint og óbeint.
„Römm er sú taug“. Úr Miðfirði er skrifað um sumarmál
1958: Síðastliðið sumar kom hingað í sveitina íslensk kona frá
Ameríku, Guðbjörg Kay Guðmundsdóttir, hún dvaldi hjá
frændfólki sínu hjer í sveitinni nokkrar vikur. — Einn dag
heimsótti hún mig. Jeg gaf henni alla „Hlín“, sem jeg átti. —
Hún sagði, að móðir sín, sem er 95 ára, og hefur góða sjón og
er vel ern, mundi hafa mjög gaman af að lesa „Hlín“.
Guðbjörg var 10 ára þegar hún fór með móður sinni vestur
um haf. — Móðir hennar heitir Helga Gestsdóttir.
Úr Þistilfirði er skrifað haustið 1957: Þú ert að biðja um að
segja þjer frá kvenfjelaginu okkar. — Helst væri það, að við
tókum á móti aðalfundi Sambands Norður þingeyskra kvenna
í sumar er leið hjer í Holti. — Það var lítilsháttar handavinnu-
sýning til hliðar við fundinn. — Þjer þykir gott að heyra það. —
Það var eingöngu unnið á heimilimum: Prjónles, vefnaður,
hekl og saumur.
Það minti mig á aðalfund Sambands norðlenskra kvenna í
Laxárdal 1932, þegar Halldóra okkar Bjarnadóttir kom austur
með stóra sýningu. Það er mjer minnisstætt, þó 25 ár sjeu liðin
síðan. — Það var okkur öllum til fróðleiks og góðrar ábend-
ingar.
Það hefur komið skarð í fjelagið okkar, þar sem húsfrú Guð-
munda í Dal er horfin okkur, hún andaðist síðastliðið vor. —
Hún var okkar atkvæðamesta fjelagskona og ein af bestu tó-
skaparkonum þessa lands, er víst óhætt að segja. — Hún var 88
ára að aldri og vann altaf ull.