Hlín - 01.01.1958, Blaðsíða 81
Hlin 79
Chrystanthemum Tricolor — Friggjarbrá: Blómgast síSsum-
ai's. — Ættuð frá Marokkó.
Matthiola — Levkoj, — Ihnskúíur: Fallegir, ilmandi blóm-
skúfar. Heldur sjer vel fram eftir hausti. — Ættaður frá Mið-
j arðarhafslöndum.
Helichrysum — Eilífðarblóm: Blómin má þurka og geyma,
jafnvel svo árum skiftir, án þess að þau missi lit eða lögun, ef
þau eru þurkuð rjett áður en þau eru fullútsprungin. — Ættað
frá Ástralíu.
Nemesia — Fiðrildablóm: Marglit, fögur jurt. Með fallegri
sumarblómum. Þarf frjóefnaríkan jarðveg.
Papaver — Valmúi: Shirley-afbrigðin algeng og falleg, sjer-
staklega þau tvöföldu. — Má sá beint út, en blómgast frekar
seint á sumri.
Það er mest fyrir sumarblómunum haft allra blóma í garðin-
U1», því þau þarf að endurnýja árlega, en þau gefa líka mikið
blómskrúð og setja sinn svip á garðinn.
I sveitunum er nóg landrými og besta aðstaða til að rækta
fallega skrúðgarða, — ef viljinn er fyrir hendi hjá þeim, sem
þar eiga heimili sín og tómstundir gefast.
Landið okkar verður fegurra og hugljúfara en nokkru sinni
fyr, þegar litskrúð blóma og laufskrúð trjáa eru komin við
flesta — helst alla — bæi og bygð ból á landinu. — Á síðari
ai'um hefur fögrum görðum fjölgað mjög hjer á landi, sjerstak-
lega í kaupstöðunum.
Garðrækt er líklega einhver útbreiddasta tómstundaiðja, sem
stunduð er í heiminum í dag, og áhugi fyrir garðrækt er víða
mikill og vaxandi. — Hollara tómstundastarf er varla hægt að
hugsa sjer. — Að fást við ræktun skrautjurta er skemtilegt,
spennandi, lífrænt.
Nákvæmni, þolinmæði og alúð þarf að sýna vinum sínum,
plöntunum, skilja þarfir þeirra eftir bestu getu, veita þeim það
sem þær þarfnast, — og þær launa með gróska sínum og fegurð.
í garðrækt er stöðuga nýbreytni og fjölbreytni að finna.
Nýjar og nýjar plöntutegundir má reyna, sumar lifa og dafna
Vel> aðrar eru tregar, einstaka óviðráðanlegar. — Þær eru upp-
1-unnar hvaðanæfa að úr heiminum, og ekki öllum jafn ljúft að
skifta um loftslag og umhverfi. — En hvernig sem gengur er
altaf hugljúft að hlúa að vaxandi gróðri.
Það leiðist engum lífið, sem kýs sjer gróðrarstörfin að tóm-
stundaiðju.