Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 54
52
lengi á eftir. Skólar voru lokaðir og danssamkomur bannaðar, meðan
veikin stóð sem hæst. Tvo síðustu mánuði ársins eru svo skráð 4 til-
felli af mænusótt, öll án lamana, og virtist þar vera um greinilega
mænusótt að ræða. Fengu sjúklingar háan hita, hálsríg, ógleði eða
uppköst, verki í útlimi, en ekki óráð.
Hofsós. Skráðir voru alls 18 sjúklingar með veiki þessa. Mér þykir
þó sennilegt, að veikin hafi verið útbreiddari í héraðinu en l'jöldi hinna
skráðu sjúklinga gefur til kynna. 2 konur, er verst fóru út úr veik-
inni, eru langt frá því að vera búnar að ná sér enn þá, og ber mikið
á taugaveiklun hjá þeim.
Dalvíkur. Undir þessu sjúkdómsheiti voru 25 tilfelli skráð. Enginn
sjúklinganna lamaðist. Hér mun hafa verið um að ræða hina svo köll-
uðu Akureyrarveiki.
Akureyrar. Hinn mikli mænusóttarfaraldur, sem getið er í skýrslu
1948, hélt áfram í janúar og fram í miðjan febrúar, en þá mun síðasta
tilfelli vera skráð.
Grenivíkur. Barst frá Akureyri hingað í héraðið rétt fyrir áramótin
1949 og varð töluvert útbreidd í Drafíastaðasókn. Engin tilfelli komu
fyrir í Grýtubakkahreppi nema á einu heimili hér á Grenivík. Ekkert
af fólki því, sem hana fékk hér í héraðinu, fékk lamanir, en það var
lengi að ná sér fullkomlega aftur; þó að veikin væri mjög væg, fengu
margir þrálátar hitakommur, stirðleika aftan í hálsi, eftir að þeir fóru
að klæðast, og bar á því, að þeir þreyttust fljótt við minnstu árevnslu.
Telja má merkilegt, að veikin skyldi ekki verða útbreiddari hér en
raun varð á, þar sem alltaf voru töluverðar samgöngur við Akureyri.
Heimili það, sem hún kom upp á hér á Grenivík, var undir eins ein-
angrað. Barnaskólanum var lokað um tveggja mánaða tíma, þar sem
kennarar þeir, sem við hann kenna, áttu heima á heimili því, sem
mænuveikin kom upp á, og annar þeirra féklc hana.
Vopnafi. Varð var við aðeins 1 tilfelli. 5 ára stúlkubarn fékk hita-
vellu í nokkra daga, lamaðist upp úr því á neðri útlimum, svo að hún
gat hvorki staðið né gengið. Batnaði tiltölulega fljótt og komst aftur
á skrið. Um varanlega lömun varð ekki að ræða, og nú virðist barnið
vera búið að ná sér alveg aftur.
Nes. 1 tilfelli í janúar. 14 ára drengur veiktist með allmiklum hita,
roða í hálsi, hnakkaríg og verkjum í fótum. 3 dögum síðar skyndileg
lömun á báðum ganglimum. 2 mánuðum síðar má segja, að um engin
einkenni lömunar væri að ræða. Sjúklingurinn var einangraður, eftu'
því sem hægt var. Engin fleiri tilfelii.
Breiðabólsstaðar. Ekkert tilfelli. Samgönguleysi í 5 mánuði sain-
fleytt í vetur varnaði því, að Akureyrai’veikin bærist hingað.
Víkur. Byrjaði hér um miðjan janúarmánuð. Alhnargir grunaðir
umfram skráða. Flestir sjúklingar í febrúar. Síðan aftur í desember og
þá allmargir grunaðir. Engar greinilegar lamanir, en fólk lengi a
ná sér.