Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Qupperneq 75
73
Seyðisfi. Ég álít, að karlmaður um fertugt hafi fengið drykkjuæði
(ekki skráð). Hafði tekið antabus um nokkurn tíma. Illa gengur að
fá sjúklinga til að taka antabus til lengdar, og ekki er það heldur út
af fyrir sig nægilegt til að bjarga drykkjusjúkum mönnum.
r
C. Ymsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Hafnarfi. Farsóttir langalgengasti kvillinn. Tannskemmdir nokkuð
tíðar, einkum í skólabörnum. Slen og þreyta þjáir marga, bæði konur
og karla, og batnar oft við vítamíninndælingar.
Ólafsvíkur. Almennastar eru tannskemmdir með þar af leiðandi
meltingarkvillum, gastritis, magasári og hægðaleysi og linku á víxl.
Vaknar sú spurning, sem torsvarað er, hvort setja megi hinn óvenjulega
þjölda (5) cancertilfella í samband hér við. Þá finnst mér arterio-
scerosis og þvaggigt (svo!) tiltölulega praecox hér og þar af leiðandi
apoplexia. Þá er occult bætiefnaskortur, helzt á eftir farsóttum. Loks
all-algengar taugaveiklunartruflanir.
Búðardals. Tannskemmdir (63 sjúldingar, 241 tönn tekin), gigt
alls konar og húðsjúkdómar.
Reykhóla. Auk kvefsóttar má telja tannskemmdir, gigt, meltingar-
truflanir og taugaslappleika.
Bíldudals. Kvefsótt algengasti kvillinn, þá tannskemmdir, gigt, melt-
mgarkvillar og taugaveiklun, síðan hár blóðþrýstingur, húðkvillar,
smáslys og ígerðir.
Flateyrar. Algengustu kvillar eru enn sem fyrr ýmiss konar efna-
skipta- og vöntunarsjúkdómar, svo sem tannáta og aðrir kvillar i melt-
tngarfærum, ýmiss konar húðsjúkdómar, gigt alls konar, svo og blóð-
]eysi og almenn linja.
Hólmavíkur. Tannsjúkdómar 135, taugaveiklun 100, gigt í ýmsuin
tnyndum 80 og meltingarfærasjúkdómar 73.
Hvammstanga. Auk farsótta ber mest á taugaveiklun alls konar og
sleni, meltingarkvillum, „gigt“ og tannskemmdum, sem fara þó minnk-
andi.
Sauðárkróks. Eins og áður farsóttir og aðrir sjúkdómar á mánaðar-
s]trá, samtals 1267 tilfelli; þar næst koma tannskemmdir 214, slys
alls konar 200, ígerðir og bráðar bólgur 160, tauga- og gigtarsjúkdómar
138, húðsjúkdómar 99, kvensjúkdómar og fæðingar 64, meltingar-
kvillar 59, augnsjúkdómar 44, blóðsjúkdómar 36, hjarta- og æðasjúk-
dómar 34, háls-, nef og eyrnasjúkdómar 21, nýrnasjúkdómar 20.
Hofsós. Auk farsótta eru meltingarsjúkdómar, tannskemmdir, alls
konar gigt og húðkvillar algengastir.
Olafsfi. Farsóttasjúkdómar algengastir, þar næst tannskemmdir
]sjúklingar alls 95), dregnar úr 168 tennur. Næst í röðinni verður
taugaveiklun og alls konar gigt.
Grenivikur. Gigt alls konar, blóðleysi, tannskemmdir, meltingar-
^villar, húðsjúkdómar og taugaslappleiki.
10