Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 119
117
fótinn af nokkru neðan við hnéð. Viðstöddum tókst vel að stöðva
hlóðrás, og missti maðurinn furðu lítið blóð. Var hann fluttur sam-
dægurs með flugvél í sjúkrahús á Akureyri og þar gerð amputatio
ofan hnés.
Vopnafí. 52 ára maður hengdi sig. Sá atburður gerðist í ótíðinni
miklu í fyrra vor. Mun orsökin hafa verið hugarangur lit af ótíðinni
°g erfiðleikum þeim, sem við var að etja í sambandi við hana. Þó var
maður þessi vinnumaður á heimili, sem hafði nóg fóður handa skepn-
um sínum. Hann var hversdagsgæfur, en þunglyndur. Fór hann úr
rúmi sínu að næturlagi og hengdi sig á bita úti í hlöðu. Á stólnum við
rúm hans var orðsending frá honum til húshóndans, þar sem hann
tjáði honum, að hann gæti ekki lifað lengur, og bað hann fyrirgefn-
lngar á athæfi sínu. Fract. costae 2, pelvis 1 — osteopsatyrosis —
baseos cranii 1, subluxatio pollicis 1, radii 1, contusio 14, distorsio 17,
vulnera incisiva 15, contusa 69, puncta 9, corpora aliena corneae &
conjunctivae 12, cutis, subcutis & subungvalis 11, meatus nasi 1 —
skrúfa — hydrarthros genus post trauma 1, intoxicatio CO 1, ambustio
10, congelatio 4. Engin stórslys urðu á árinu. 9 manneskjur brennd-
Ust lítils háttar — I. og II. gr. — og eitt barn mikið — III. gr. 4
manneskjur kól lítils háttar á andliti. Barn hrökk út úr bíl og kom
a höfuðið í glerharðan snjóskafl. Féll í rot, og blæddi úr nösum og
óðrum eyrnagangi — fract. baseos cranii. — Barn datt fram á gló-
audi eldavél og brenndist neðan til á kvið og á læiú — III. gr. Maður
var að tálga neðan úr klaufum á hrút. Slapp hnífurinn af ldaufinni í
þumalfingursgreip honum, og varð af allmikið sár. Maður var að höggva
111 cð meitli stykki úr reiðhjóli. Hljóp járnflísí augahonum, oghlauthann
al sár á cornea og langvinna hornhimnubólgu. Þýzk vinnukona, óvön
hestum, féll af hestbaki og marðist mikið í klofi, á lærum og kvið.
^leiðslin virtust hafa orðið við það, er hún kastaðist ofan í hnakk-
nefið, áður en hún féll af baki. Sjómaður á síldveiðiskipi rak hausinn
svo hastarlega upp undir járnbita á yfirbyggingu á þilfari, að höfuð-
eðrið skarst í sundur þvert yfir hvirfilinn inn í bein. Var skurðurinn
14 sm á lengd. Maður féll ofan um loftgat á ullarhúsi í neðra gólf.
"larðist og tognaði í baki og á læri. Maður var að fara yfir Sunnudalsá
a kláfi. Slitnaði þá annar strengurinn, og féll maðurinn úr kláfnum
margra mannhæða fall ofan í óstæðan hyl. Ekki var hann syndur,
en buslaði þó einhvern veginn til lands. HÍaut hann noltkrar skrámur
1 andliti, en varð að öðru leyti ekki meint af fallinu. Maður var að
sinna ljósamótor í húskjallara, sem lokaður hafði verið vegna stór-
hríðar. Illa mun liafa verið gengið frá óþéttu útblástursröri. Mann-
inum varð snögglega illt, og riðaði hann til falls. Komst með naum-
mdum út úr dyrunum, sem liann hafði skilið eftir opnar, og stakkst
nieðvitundarlaus i snjóskafl. Fannst hann þar brátt, er hans var sakn-
að á heimilinu. Raknaði fljótlega við og varð ekki frekar meint af.
Hér virðist hafa verið um kolsýrlingseitrun að ræða vegna ófullnægj-
andi loftræstingar og ills frágangs á útblástursröri.
Bakkagerðis. 3 ára barn datt á andlitið og hjó stóra rauf framan á
unguna. Komið var með barnið til Seyðisfjarðar og tungusárið