Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 144
142
Sauðárkróks. Á miðju ári tók til starfa nýtt sjúkrasamlag í Skarðs-
hreppi með 65 meðlimum, og er þá aðeins einn hreppur í læknishér-
aðinu, Skefilsstaðahreppur, jíar sem ekki er sjúkrasamlag starfandi.
Heilsuverndarstöð er engin i héraðinu.
Hofsós. Á árinu voru stofnuð 2 ný sjúkrasamlög, í Fellshreppi og
Hólahreppi. Viðvikurhreppur er því einn eftir án sjúkrasamlags.
Ólafsjj. Iðgjöld sjúkrasamlagsins 10 kr. á mánuði. Fjárhagur góður.
Akureyrar. Heilsuverndarstöð Akureyrar hefur starfað með sama
hætti og undanfarin ár, þ. e. a. s. eingöngu að berklavörnum. Þá hefur
Rauðakrossdeild Akureyrar eins og undanfarandi ár annazt sjúkra-
flutninga.
Grenivikur. Oft kemur fyrir, að hjúkrun vantar í heimahúsum, en
ekki er hægt að fá manneskju til þeirra starfa. Sama er að segja
um húshjálp, ef veikindi ber að höndum, þó að hennar sé brýn þörf.
Ákjósanlegt væri, að stúlka væri hér í héraðinu, sem grípa mætti til,
ef þörf krefði, og henni þá greitt af hreppi eða ríki. Sjúkrasamlag
hefur starfað hér með sama hætti og áður. Iðgjald var kr. 80,00 síð-
ast liðið ár fyrir einstakling. Afkoma þess sæmileg.
Kópaskers. Sjúkrasamlag hefur starfað í nokkur ár í Presthóla-
hreppi, en á árinu voru stofnuð sjúkrasamlög í Kelduneshreppi og
Öxarfjarðarhreppi. Eru þá enn 2 hreppar sjúkrasamlagslausir, Raufar-
hafnarhreppur og Fjallahreppur. Útlit er fyrir, að sjúkrasamlag verði
stofnað á Raufarhöfn á næsta ári.
Bakkagerðis. Hjúkrunarfélag er til, en mun starfa lítið. Sjúkrasam-
lag ekkert. Heilsuverndarstarfsemi getur varla verið um að tala í hér-
aði, sem enginn fastur læknir er í. Það hefur þó verið ákveðið, að hver
þjónandi læknir fari einu sinni á ári í heilbrigðiseftirlitsferð i hér-
aðið, meðan læknislaust er, og sé til viðtals einn dag, sinni sjúkling-
um, sem þurfa kynnu á læknishjálp að halda, veiti leiðbeiningar í
hollustuháttum o. s. frv.
Seyðisfj. Hjúkrunarfélag er ekkert og sjúkrahjúkrun ekki teljandi
nema í sjúkrahúsi. Sjúkrasamlög eru 2, í Seyðisfjarðarkaupstað og'
hreppi, og vegnar báðum vel. í Loðmundarfirði hefur ekki verið
stofnað sjúkrasamlag. Loðmfirðingar þurfa sjaldan á lækni að halda,
en aftur á móti eykst aðsókn að lækni í kaupstaðnum. Heilsuverndar-
stöð hefur verið rekin hér síðan 1939, en eins og áður hefur verið
getið um, er starfsemin aðallega hundin við berklavarnir. Ég álít,
að árangur á því sviði hafi verið ágætur.
Breiðabólsstaðar. Sjúkrasamlög eru hér starfandi. Á árinu jnun
læknisvitjanasjóður hafa verið stofnaður af 5 hreppum.
Vestmannaeyja. Engin starfandi hjúkrunarkona á vegum bæjar eða
líknarfélaga, er fari út um bæinn til að hjúkra rúmliggjandi sjúk-
lingum, og þar sem engir eru á heimilum til að hjálpa sjúkum, þurla
rúmliggjandi sjúklingar að komast á sjúkrahús, svo fljótt sem unnt
er. Sjúkrahúsið er jafnan yfirfullt, og horfir til vandræða með rúm
þar vegna stöðugt vaxandi eftirspurnar. Sjúkrasamlag starfar her
samkvæmt alþýðutryggingarlögum. Við ung'barnaverndina er hjúki'-
unarkona allan daginn frá miðjum október—maí. Önnur hjúkrunar-
kona starfar við barnaskóla og bcrklavarnarstöð. Kvarzlampar eru