Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 206
204
Dalvíkur. Meira ætti að vera hér um íþróttaiðkanir, einkum úti
undir beru lofti.
Akureyrar. Byrjað lítillega á byggingu yfirbyggðrar sundlaugar og
búningsklefa þar, og er tilætlunin, að sundlaug þessi verði meðal
annars notuð til sundkennslu að vetrinum. Búið er að afmarka svæði
fyrir iþróttavang efst á Oddeyrinni. Liggur svæðið á mjög góðum
stað, og er þegar farið að gera þar hlaupabraut og laga svæðið til að
ýmsu öðru leyti. Gera má þó ráð fyrir, að þessi íþróttavangur (stadion)
verði ekki tilbúinn til notkunar fyrr en eftir a. m. k. 2—3 ár.
Grenivíkur. Mjög dauft yfir öllu íþróttalífi. Helzt nokkuð farið á
skíðum, þó ekki eins almenn þátttaka og áður. Enginn skiðakennari,
en skíðakennsla vekur alltaf áhuga á skíðaíþróttinni, að minnsta kosti
i bili.
Bakkagerðis. fþróttastarfsemi engin teljandi.
Seyðisff. Mættu vera meira iðkaðar. Leikfimi kennd í barnaskólan-
um og sundkennsla fyrir skólabörn haust og vor (sundhöllin lokuð
yfir veturinn í sparnaðarskyni). Að sumrinu eru sundnámskeið fyrir
alla, er þess æskja, og eru töluvert sótt. Skíðafélagið „Snækóngur“
gengst fyrir skíðaferðum á vetrum, þegar færi gefur.
Breiðabólsstaðar. Engar iðkaðar.
Vestmannaeyja. Knattleikir, golf, sund, glímur og innanhúsleik-
fimi stundað af kappi á sumrin og eins á haustin og yfirleitt allt
árið, þegar þess gefst færi. Hafin er gerð íþróttavallar fyrir ofan
Landakirkju. Varið til þess á árinu um 50 þúsund krónum.
10. Alþýðufræðsla um heilbrigðismál.
Læknar láta þessa getið:
Árnes. Alþýðufræðsla um heilbrigðismál engin.
Hvammstanga. Eingöngu munnlegar leiðbeiningar, en yfirleitt
hvenær sem tækifæri gefst, aðallega um meðferð ungbarna, lifnaðar-
hætti kvenna um meðgöngutímann og almennt um matarhæfi, hrein-
læti o. s. frv.
Blönduós. Hefur farið nokkur fram. Ég hef flutt erindi um áhrif
eiturnautnar, einkum áfengis, á námskeiði bifreiðarstjóra hér og
einnig fyrir almenning.
Sauðárkróks. Héraðslæknir flutti erindi á námskeiði, er haldið
var á Sauðárkróki fyrir meiraprófsbílstjóra. Ræddi aðallega um áhrif
áfengis og fleira, er snerti störf bílstjóra, eða það, er þeir þyrftu að
varast. Héraðslæknir hélt einnig erindi í Rótaryklúbb Sauðárkróks
um mænuveiki.
Akureyrar. Héraðslæknir flutti 3 fyrirlestra um heilbrigðismál í
héraðinu.
Seyðisfi. Engin opinber fræðsla. Fólk hefur miklu úr að moða í
þeim efnum, og læknarnir þurfa að vera á verði, a. m. k. til að geta
svarað fyrirspurnum um „öll nýju meðulin", hvort þau séu nú ekki
komin.
Breiðabólsstaðar. Mjög af skornum skammti. Er þó leitazt við að