Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 215
213
hrörleg í Árnesi. í henni eru kirkjumunir, en tæplega mun hægt að
verja þá skemmdum þar. Kirkjugarður þar er mjög illa hirtur.
Blönduós. Samkomuhús hafa ekki verið reist á árinu, enda eru
þau hér í öllum hreppum. Kirlcjunum á Blönduósi og í Höfðakaup-
stað er haldið mjög vel við, en nokkru miður sveitakirkjunum.
Kirkjugörðunum er lítill sómi sýndur hér sem annars staðar.
Sauðárkróks. Samkomuhúsið á Sauðárkróki er orðið allt of lítið og
úr sér gengið, en fjármagn vantar til að byggja nýtt.
Ólafsjj. Samkomuhúsið í sæmilegu ástandi, en illa byggt í upphafi.
Kirkju sæmileg'a viðhaldið. Kirkjugarður stækkaður nokkuð og
steyptur garður um hann á tvo vegu.
Grenivíkur. Samkomuhús hið sama og áður. Er það nokkuð farið
að láta á sjá og þyrfti lag'færingar. Kirkjur í góðri hirðu og kirkju-
garðar sæmilegir.
Seyðisfj. Samkomuhúsi því, sem byrjað var á 1948 og áður hefur
verið getið, er enn ekki fulllokið, svo að enn þá verður að notast við
Bauðakrossskála (gamlan hragg'a) til leiksýninga, dansleikja o. fl.
Veglegri samkomur fara fram í sölum barnaskólans. Kvikmyndir eru
einnig sýndar í gömlu, uppgerðu vörugeymsluhúsi. Það er líka bráða-
birgðaráðstöfun, en hefur staðið lengi. Kirkja bæjarins er veglegt
guðshús, en í Loðmundarfirði er gömul og fornfáleg kirkja og sjaldan
notuð.
Breiðabólsstaðar. Hafin er bygging félagsheimilis að Kirkjubæjar-
klaustri, sem á að vera sameiginlegt fyrir sveitirnar á milli sanda.
Verður það bæði stórt og vandað og með nýtízkusniði. Sótt hefur
verið um fjárfestingarleyfi fyrir samkomuhús í Skaftártungu. Sam-
komuhúsið í Álftaveri hefur verið endurbætt. Um kirkjur og kirkju-
garða hefur ekkert verið hirt undanfarið, og kirkjusókn er áfram
léleg.
Vestmannaeyja. Uingengni á þessum stöðum má teljast yfirleitt
góð. Umgengni um kirkjugarð hefur stórbatnað.
18. Meindýr.
Læknar láta þessa getið:
Búðardals. Mýs hafa gengið hér ljósum logum í þorpinu og gert
mikið tjón á matvælum. Fyrir áeggjan mína var fenginn meindýra-
eyðir úr Reykjavík til að vinna á vágesti þessuin, þar eð allar heima-
ráðstafanir höfðu reynzt gagnslausar. Er nú allt rólegt á þeim víg-
stöðvum.
Bildudals. Urmull er hér af rottum um allan kaupstaðinn, mest
þó í fjörunni kringum bryggjurnar, enda ekkert gert til að útrýma
henni, heldur er hún kappalin á fiskúrgangi, sein látinn er liggja dög-
um og vikum saman á bryggjunum eftir aðgerðir, án þess að vera
hreinsaður burt eða þá rutt í fjöruna.
Bolungarvíkur. Rottur eru nokkuð áberandi í þorpinu og lítið gert
R1 að útrýma þeim.
Árnes. Húsaskítur á Eyri og Djúpavík í gömlu bröggunum. Á sömu
stoðum þó nokkur rottugangur og gengur illa að eyða þeim. Veggja-