Andvari - 01.01.1973, Side 111
ANDVARI
KÓPERNÍKUS, ÆVl [IANS OG AFREK
109
embættiserindum og sem læknir, þegar til hans var leitað. Hann var ókvæntur,
og síðustu árin í Frombork voru honum ert’ið. Systkini hans voru þá látin,
og hann átti fáa vini. Ráðskonu hafði hann um tíma, en hún hraktist lrá
honum fyrir ofríki biskups eins, sem taldi óforsvaranlegt, að ung stúlka byggi
undir sama þaki og roskinn kirkjunnar þjónn.
A þessum árum, eftir að hann flutti alfarið til Frombork, vann hann
mesta starf sitt í þágu stjörnufræðinnar, það verk, sem hefur gert nsfn hans
ódauðlegt. Áður en ég fjalla sérstaklega um þennan þátt í starfi þessa mikla
atorkumanns, tel ég rétt að gera stutta grein fyrir þeim menningarlegu að-
stæðum, sem Kóperníkus bjó við, og því andrúmslofti, sem ríkti, þegar hann
var að móta skoðanir sínar á heimsmyndinni.
Kóperníkus lifði á viðburðaríkasta skeiði endurreisnartímans, þegar Evrópu-
búar voru að losna úr viðjum miðaldanna, lénsskipulagsins, kirkjuvaldsins og
skólaspekinnar. Miklar breytingar gerðust á þessum dögum, og aðrar lágu í
loftinu. Uppgötvun prentlistarinnar laust fyrir miðja 15. öld átti mikinn þátt
í að örva þessa þróun og varð til þess að víkka sjónarsvið manna. Einnig víkk-
aði sjóndeildarhringurinn í bókstaflegum skilningi með landafundunum rniklu.
Meðan Kóperníkus var við háskólanám í Krakow, fann Kólumbus Ameríku,
og þegar Vasco da Gama fann sjóleiðina til Indlands, var Kóperníkus við
nám í Bologna. Þegar Kóperníkus stjórnaði vörn Olsztyn gegn þýzku riddur-
unum, var Magellan lagður af stað í fyrstu siglinguna umhverfis hnöttinn.
Einnig í trúmálum voru umbrotatímar. Kóperníkus var í Olsztyn, þegar Lúther
festi hin frægu mótmæli sín á kirkjudyrnar í Wittenberg, og meðan Kóperníkus
vann að höfuðriti sínu um stjörnufræði, voru trúardeilur mótmælenda og
kaþólskra í algleymingi. Ivóperníkus var maður umburðarlyndur og ofstækis-
laus og forðaðist sem mest að blanda sér í þetta trúmálastríð, þótt hann væri
að sjálfsögðu embættismaður kaþólsku kirkjunnar.
Eins og fyrr er sagt, mun Kóperníkus fyrst hafa fengið veruleg kynni af
stjörnufræði, þegar hann stundaði nám í Krakow. Einn kunnasti stjörnufræð-
ingur Póllands í þá daga, Brudzewski, var prófessor við háskólann þar. Eftir
Brudzewski liggja ritverk, sem gefa til kynna, að hann hafi verið glöggur
fræðimaður, sem kom auga á ýmsar veilur í stjörnufræðilegum kenningum
þess tíma. Ekki virðist hann þó hafa gert tilraun til að finna skýringar á
skekkjunum eða leita að nýju kennikerfi.
Samanburður á ritgerðum Brudzewskis og þeim riturn, sem Kóperníkus
lét síðar frá sér fara, bendir til þess, að Kóperníkus hafi orðið fyrir áhrifum frá
þessum lærimeistara sínum í Krakow. Er meira en hugsanlegt, að þá þegar
hafi fæðzt hjá Kóperníkusi sú hugmynd, að kerfi himinhnattanna væri með