Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 29
24
Magnús Helgason:
Preslafélagsritiö
sagði austurlenzki spekingurinn tugum alda áður. Sama segir
sagan og reynslan, þjóða og einstaklinga, á öllum öldum.
Trúin þarf að wera salt menningarinnar, ef ekki eiga að sann-
ast á henni hin frægu dómsorð Rousseaus: »því meiri sið-
menning — því dýpri siðspilling*. Við óskum eftir meiri alþýðu-
mentun, ég óska þó einkum eftir meiri kristindómi, svo að
mentun okkar kafni ekki í efnishyggju, aurasýki og mun-
aðarsótt. Ég óska hans til að gera íslendinga að vönduðum
mönnum og göfuglyndum, koma þeim til að elska sannleik og
réttvísi í hverju máli og vilja hver öðrum hvatvetna gott,
gefa þeim þrótt til að starfa, þol til að líða, án þess að bug-
ast og halda vakandi hjá þeim glaðri von um eilífa framför
og sigur hins góða. Þið kannist við þjóðsöguna um álfkon-
urnar tvær, sem komu að ungbarni í vöggu til að skifta um
það, en urðu frá að hverfa með þessum orðum: »Ekki má, því
mein er á, kross er undir og ofan á, og tvævetlingurinn situr
hjá og segir frá«. Veslings móðirin hafði orðið að fara og
skilja hvítvoðunginn eftir og tvævett barn hjá, en markaði
krossinn helga yfir og undir og fal það Guðs vernd, þó að
barnfóstran væri smá. Krossinn helgi, markaður af móður-
hendi, var aðalskjöldur barnsins gegn illvættunum. Án hans
hefði tvævetlingur Iítið mátt. Falleg saga, og hefir djúpan og
sígildan sannleik að geyma, eins og fleiri þjóðsögur. Það
sækja enn í dag ekki síður ótal illar vættir að hinni upp-
vaxandi kynslóð, til að gera hana að umskiftingum. Enn þurfa
mæðurnar að »fá henni englavörð, síns insta hjarta bænargjörð*.
Kristindómurinn frá móðurvörunum og móðurhjarfanu verður
enn bezti skjöldurinn. Með honum getur og góður kennari
hjálpað, eins og tvævetlingurinn; án hans megnar hann lítið.
»Látið börnin koma til mín«, sagði Jesús. Takið öll þau orð
hans til ykkar. Leiðið þau beint til hans; segið þeim orð hans,
eins og nánustu vinir hans skýra frá þeim í guðspjöllunum.
Berið þau til hans á bænarörmum, um leið og þið leitið ykkur
þar sjálf skjóls og hjálpar. Látið engar mannasetningar kom-
ast upp á milli ykkar og hans. Byggið þar ofan á alt gott og