Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 201
Prestafélagsritið.
Um gildi mannsins.
187
sem hefði lagst ofan á haná, og alt væri gefandi til þess, að
ná henni fram í dagsljósið og hreinsa hana. Þá myndi hún
aftur blika tær eins og í upphafi. Ég hlýddi á hugfanginn
og varð jafnframt litið umhverfis mig um kirkjuna fulla af
fólki. Aldrei hafði ég vitað, að mannlífið væri svona ríkt.
Þá gekk inn kirkjugólfið gamall maður, ég hafði áður lítils-
virt hann í hjarta mínu og vissi, að svo var einnig um aðra.
Nú var hliðrað til fyrir honum, og vér litum hann vísast öll
öðrum augum. Hann átti líka perluna dýru.
Megum vér treysta þessu?
Vér leitum eins og kaupmaðurinn, leitum hið innra, köfum
í djúp hugans. En komum vér með perlu að landi?
Vér sjáum næmleikann siðferðilega, sem vér eigum til þess
að greina sundur gott og ilt, rétt frá röngu. Hann er svo
Ijós og skarpur, að honum skeikar írauðla. Þótt vér jafnvel
höfum vilst út á refilsstigu við það, að óhlýðnast dómum hans
í breytni vorri, þá hefir hann aldrei sljóvgast svo, að vér
höfum ekki kunnað að meta hið góða, er það hefir snortið
oss. Vér finnum það í allri baráttu vorri, hvílíkum undra-
leiðsögumætti hann er gæddur.
Átakanlegast getur hann birzt oss sem samvizkukvöl. Líf
vort hefir ekki verið sem skyldi. Vér höfum stigið margt
sporið skakt, hrasað og fallið til jarðar. Ógna-djúp er stað-
fest milli þess, sem vér erum og ættum að vera. Hið góða
hjá oss er aldrei nógu gott né hið hreina hreint, og vér
höfum gefist myrkri og óhreinleika á vald. Það hefir valdið
oss þyngstum harmi og oss þótt »maðurinn moldu samur«.
En getum vér þá ekki skilið þessa kvöl? Svo sárt fellur oss
það, að hið góða dæmir oss sek, því að inst í hjartanu vilj-
um vér það, þráum það, elskum það. Vér þolum það ekki,
að máttur þess víki frá oss, og því virðist oss það stundum
verða fegurra og tignarlegra eins og fjöllin, er vér fjarlægj-
umst það. í djúpum sálar vorrar — dýpra en alt annað —
býr þrá til þess, sem gott er. Kærleikurinn til hins góða er
aðal vort.
Við þann kærleika höfum vér öðlast dásamlega reynslu: