Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 125
Prestafélagsritiö.
Frá Reykholtsprestum.
119
prest séra Björn í Laufási, höfðu þá margir hér heyrt nefndan
og ti! góðs getið. Fregnir bárust hingað um hinn tilvonandi
prest og var einróma lýsing af gáfum hans og glæsimensku.
Var þá sagt að hann bæri jafnt af samtíðarmönnum og
Kjarfan Ólafsson í Hjarðarholti hefði gert. Ekkert þóttu þær
fregnir ýktar er hann kom hér fram í fyrsta sinni. Aðeins
vantaði hann eitt, er má prýða góðan prest, en það var fögur
söngrödd. Ræður hans þóttu ágætar, en samt vildu sumir
eldri menn segja, að eitthvert nýjabrum væri á þeim. Einn
aldraður maður hér í sókn, skarpgáfaður og hótfyndinn,
Kjartan Gíslason að nafni, var spurður hvernig honum hefði
þótt að heyra til nýja prestsins. Var þá hik á Kjartani að
svara. »Hví vilfu ekkert gefa mér út á þetta«, segir sá er
spurði, sem var Eyjólfur skáld í Hvammi, »líklega hefir það
þó verið guðsorð sem maðurinn flutti ?« »Ha, guðsorð, nei, guðs-
orð var það nú aldeilis ekki«. »Hvað var það þá?« »Það
var sambland af heimsádeilu og siðalærdómi«. Þessar spurn-
ingar og svör bárust presti til eyrna og þótti honum gaman
að og geymdi Kirkjublaðinu það, sem annað góðgæti.
Ekki þarf að lýsa því hve almennra vinsælda séra Þórhallur
naut hér það eina ár, er hann var hér þjónandi prestur, og
ekki gerist þörf að rekja hér hans auðnuríka æfiferil. Hann
er hér öllum svo kunnur.
Eg man hve móðir mín taldi það óbætanlegan skaða, er
hún fékk þá fregn, að séra Þórhallur færi burt frá Reykholti
°3 hefði brauðaskifti við séra Guðmund Helgason prest á
Akureyri. »Þið hafið ekki skaðaskifti«, sagði séra Þórhallur.
þótt menn væru búnir að reyna hann að sannleiksást, var
honum tæplega trúað í það skifti. Því langt þótti til jafnað og
litlar líkur, að annar kæmi hér slíkur.
Vorið 1885 kom séra Guðmundur Helgason að Reykholti.
yar hann þá 32 ára að aldri, en búinn að þjóna prestsembætti
1 9 ár. Um ætt hans og uppruna þarf ekki hér að greina.
Það er hverjum manni enn svo kunnugt. Svo er einnig með
atgerfi hans og útlit. Allir vita það, að hann var fluggáfaður
°9 höfðingi í sjón og raun. Glaður og reifur og hinn veglát-