Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 216
202
Fr. Fr.: Ferð um Auslurland. PrestaféiagsriHs.
margir drengir. Það kvöld talaði í kirkjunni þar Ólafur Ólafsson kristni-
boði og þar á eftir hafði ég litla samverustund með viðstöddum K. F.
U. M. mönnum. Siðasta kvöldið, miðvikudagskvöld, hélt ég drengjasam-
komu kl. 8, og kl. 9 fund í K. F. U. M. — K. F. U. M. á Sauðárkrók
verður nú í haust 5 ára gamalt og hefir starfað mjög dyggilega þennan
tíma. Það var stofnað 11. nóv. 1923, var það ungur maður, er kynst
hafði félaginu í Danmörku, Steingrímur Benediktsson, er gekst fyrir því
með tilhjálp sóknarprestsins, prófasts Hálfdánar Guðjónssonar, og Jóns
kennara Björnssonar. Var mér hin mesta ánægja að heimsækja þetta
félag. — Frá Sauðárkróki fór ég með Lagarfoss til Akureyrar og var
þar 3 daga til þess að komast suður með Gullfoss. Þar hélt ég sam-
komu á sjúkrahúsinu eftir beiðni Steingríms læknis Matthíassonar. Og
þar að auki lítinn samtalsfund með piltum úr Ungmennafélagi Akureyrar
og var það mér mjög ljúf stund, sem seint gleymist. — Svo fór ég með
Gullfoss vestur um land heim. —
Lengi mun mér verða minnisstæð þessi ferð mín um Austurland, og
þakka ég þeim öllum, sem að því studdu, Prestafélaginu frumkvæði og
fararstyrk, og ekki síður ungmennafélögum Héraðsins, er tóku mér svo
hjartanlega og greiddu för mína og erindi á allan hátt. Mér þótti að
eins leitt, hve iítinn tíma ég hafði til þess að geta bæði dvalið lengur
og komið víðar og mundi ég nú hér eftir ekki kvíða fyrir, heldur hlakka
til, ef mér mætti auðnast að koma þangað aftur og starfa þar eitthvað
lengur en ég gat nú. — Sendi ég hér með kveðju með þakklæti til
allra þeirra staða þar sem ég kom og alls þess fólks, sem gerðu mér
ferðina svo ánægjuríka. Fr. Fríðriksson.
KíRKjUMÁL Á ALÞINGI.
Eftir Magnús Jónsson.
Fyrir síðasta Alþingi lágu engin merk kirkjumál. En þó voru þar nú
sem fyr til meðferðar nokkur smærri mál, sem snertu kirkjuna og presta,
og skal hér minst á þau nokkrum orðum.
1. Launalögin voru enn framlengd og gilda nú til ársloka 1930. Fjár-
hagsnefnd neðri deildar óskaði þess í nefndaráliti sínu, að stjórnin undir-
byggi fyrir Alþingi 1929 framtíðarskipulag launamálanna, en taldi nóg að
skipa á því þingi milliþinganefnd í málið, ef stjórninni ekki tækist að
búa það undir.