Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 39
34
Magnús Jónsson:
Prestafélagsritið..
ganga undir því nafni. Alt var nú á því reist, að Markúsar
guðspjall væri elzt, og að mestu óhagganleg heimild og við
hlið þess átti svo önnur heimild, álíka góð, að liggja til grund-
vallar þrem fyrstu guðspjöllunum, hin svonefnda ræðuheimild.
Þessi kenning hefir verið kölluð tveggja-heimilda kenningin
og er það stirt nafn á íslenzku. Það sem ekki var úr þess-
um heimildum, var síðari tíma viðbót. Beitt var því frádráttar-
aðferð, líkt og >ratíónalistarnir« höfðu gert, aðeins munurinn
sá, að nú var frádrættinum beitt eftir miklu heilbrigðari reglum..
Og reyndár má segja, að þegar tveggja-heimilda kenningin er
sett fram með skynsemd og gætni, sé hún, enn sem komið
er, einna aðgengilegust skýring á þessu vandamáli. Þess verður
aðeins að gæta, að verða ekki yfir sig nákvæmur í sundur-
liðunum, og ekki neita því, að fleiri ágætar heimildir geti
legið til grundvallar guðspjallafrásögnunum. Þá má ekki heldur
gleyma því, að vér eigum enga trygging fyrir því, að guð-
spjallamennirnir hafi notað Markúsar guðspjall í þeirri mynd^
sem vér höfum það nú.
Gallinn var sá, að erfiðleikunum var ekki nógur gaumur
gefinn. Höfundarnir skeiðriðu alt í þeirri vissu von, að enginn
steinn væri lengur í götunni. Ótrúlegur sægur var ritaður af
æfisögum Jesú, og allar svo að segja eins. Menn þóttust finna
greinilega þróun í lífi Jesú og skoðunum. Upphaflega var
honum ekki ljós Messíasar-köllunin, en hún skýrðist smám
saman og einkum eftir viðburðinn við Sesareu Filppí (Mark.
8, 27 nn.). Þá fer honum og að verða það ljóst um líkt leyti^
að fyrir honum muni liggja þjáningar og dauði af manna
völdum. — Þetta sama er svo rakið með smá breytingum í
öllum þessum sæg bóka, þó að munur sé annars talsverður
á þeim að öðru leyti. T. d. er E. Renan talsvert nærri ratí-
ónalistunum og Strauss í skoðunum, en Bernhard Weiss nær
rétttrúnaðinum. Keim og Beyschlag eru ágætir vísindamenn
og nákvæmir sagnaritarar. En sameiginlegt er það með þeim
öllum, að þeir telja vel mögulegt, að rita æfisögu Jesú líkt og
æfisögur annara mikilmenna fortíðarinnar. Aðrir hafa ritað
beinar skáldsögur um Jesú, óvísindalegar og smekklausar og.