Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 82
Prestafélagsritið.
Gandhi.
77
máli og brosandi. Og fáum mínútum síðar luktist fangelsis-
hurðin að baki honum. Hann var horfinn þjóð sinni, eins og
hann væri dáinn og grafinn. Ekki er furða þótt vinum hans
þættu það raunaleg leiksiok. En það er bót í máli, þegar svo
ber undir, að hugsanir verða aldrei fjötraðar né inni byrgðar,
hvorki í fangelsum né gröfum. Þó að nú yrði hljótt um post-
ula Indiands, og rödd hans þögnuð í bili, þá fóru hugsanir
hans sigurför mánn frá manni.
Það er undravert, með hverri stillingu þjóðin tók þessum
dómi, sem svifti hana sínum bezta manni. Ef Gandhi hefði
verið dæmdur í margra ára fangelsi, þegar hann var tekinn
fastur 1919, í byrjun byltingarinnar, þá má telja víst að svo
mikið uppþot hefði orðið, að alt Indland hefði flotið í blóði.
En nú hreyfði enginn hönd né fót. Svo mikið hafði þjóðin
laert af meistara sínum þennan þriggja ára tíma.
Gandhi var dæmdur í 6 ára fangelsi, og hefði því átt að
sitja inni þar til í marz 1928. En svo löng varð ekki fanga-
vist hans. Eftir hálft annað ár (haustið 1923) varð stjórnar-
breyting á Englandi. Jafnaðarmenn komust til valda. Þeir
komu því til leiðar, að Gandhi var gefin lausn.
Því miður hefi ég ekki fengið svo Ijósar fregnir frá Ind-
landi síðan, að ég geti sagt söguna lengri, hvorki af Gandhi
og starfi hans, né af sjálfstæðishreyfingunni. Gandhi hefir ekki
tekið aftur við forustu sjálfstæðismanna. En þau 3 ár, sem
hann hafði forustuna á hendi, eru merkisár í sögu Indlands
— og mannkynsins. Enginn dómur skal á það lagður hér,
hve mikið Gandhi hefir greitt fyrir því að Indland fái full-
veldi í sínum málum. En hitt er öllum Ijóst, sem sögu hans
kynnast, að hann hefir haft undraverð áhrif á þjóð sína til
siðgæðis og andlegs þroska.
Gandhi telur sig ekki kristinn mann, eins og áður er sagt.
En allur hugsunarháttur hans og lífssíefna virðist vera í anda
lesú Krists. Vesturlandaþjóðirnar hafa lengi rekið kristniboð
á Indlandi, og ekki orðið mjög mikið ágengt. Gandhi hefir
Sert meira en þær til að opna hjörtu Hindúa fyrir boðskap
)esú. Það hefir hann gert bæði í verki og orði. — Einu