Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 52
Pres1«fé!«SsritiB.
Haraldur Níelsson.
47
mál, og áhugi á að láta sannleikann einn ráða, hvernig sem
áður var þýtt.
Hrifningu manna yfir hinni nýju þýðingu, þegar hún birtist,
má meðal annars marka af tvennum ummælum merkra manna,
sem hér skulu tilgreind.
Onnur ummælin eru eftir Eirík meistara Magnússon í
Cambridge og birtust í »Nýju kirkjublaði* 1910. Var dómur
hans á þessa leið er hann hafði farið yfir hina nýju þýðingu:
‘Þýðing Gamla-testamentisins er hin fegursta og réttasta,
sem enn getur á Norðurlöndum. . . . Þýðingin — að því er
ég get dæmt — er snildarverk; hún er þjóðlegt stórvirki;
þjóðgæfu-viðburður á þungri og illri tíð; einn meginhlekkurinn
1 hinni göfugu frelsisstefnu í trúarlífi íslenzkrar kirkju. . . .
Þó eigi sé litið nema á málið eitt á þýðingunni, þá er það
sannast mála um það sagt, að engin eins málhrein bók hefir
börnum íslands borist, síðan út komu Kvöldvökur Hannesar
biskups, og Odysseifs-kviða Sveinbjarnar Egilssonar. En sá er
h>nn mikli munur, að Biblían verður allra-heimila-bók fram-
t'ðarinnar, en hinar bækurnar voru, tiltölulega, á fárra vitum.
Hvaða áhrif slík þýðing hefir á þjóðerni íslendinga, að
málinu einu til, og sleptu hinu mikla háa efni, þarf eigi að
skýra*.
Hitt eru svofeld ummæli í Andvara 1910, eftir séra Jens
Pálsson: »Biblíuþýðingin nýja — einkum frumþýðing séra
Haraldar Níelssonar á G.-t. — er hið mesta vísindalegt og
lafnframt kirkjulegt stórvirki, sem unnið hefir verið í íslenzku
Hrkjunni á síðari öldum; — en það er og annað meira: Það
er það metnaðar-þrekvirki og fremdar-afrek af hálfu kirkju
Þessa lands, er skýrt markar á skjöld hennar sæmd og sjálf-
Hæði á komandi tíð«.
Auk sjálfs Gamla-testamentisins höfðu þeir Þórhallur biskup
°9 séra Haraldur tekið sér fyrir hendur að þýða hinar apo-
kryfisku bækur G.-t., og var því verki langt komið, er biskup
|áll frá. — Því miður hefir því verki ekki verið lokið og hið
'slenzka biblíufélag ekki enn séð sér fært að gefa út hina
ny)u þýðingu þessara rita. En vonandi er, að ekki líði á löngu