Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 213
Prestafé.agsriHC.
Fr. Fr.: Ferð um Austurland.
199
og sigldum fyrir sunnan Iand í mesta blíðskaparveðri. Þrátt fyrir mann-
mergðina, sem með var skipinu, var ferðin hin skemtilegasta og var að-
dáanleg góðfýsi skipverja, hvernig þeir hliðruðu til fyrir farþega og fórn-
uðu þægindum sínum fyrir þá. Seint að kvöldi þann 18. komum vér til
Reyðarfjarðar. Þar var áætlunarstaður minn. Var ég þar um nóttina og
næsta dag í góðu yfirlæti hjá Jóni Pálssyni dýralækni.
Þann dag var sýning og samkoma hjá Kvenfélagi Reyðárfjarðar.
Þar hélt kennari Guðgeir Jóhannsson frá Eiðum erindi um Rauðakross-
inn og Florence Nightingale. Svo hélt ég erindi um kristilegar hreyfingar
meðal æskulýðsins. Um kvöldið hélt ég fund með drengjum og ungling-
um í stofum dýralæknisins. — Næsta dag fór ég út til Hólma og var þar
um kvöldið hjá séra Stefáni Björnssyni og sat þar í góðum fagnaði og
samræðum; var kvöldið mjög unaðslegt.
Næsta dag að áliðnum miðjum degi fór ég til Eskifjarðar og var þar
um kvöldið. Ég gisti hjá vini mínum Þorgils bankastj. Ingvarssyni og
heimsótti góða vini. Um kvöldið hélt ég samkomu í kirkjunni og var hún
mjög vel sótt, og áheyrn hljóð og athugul. Snemma næsta dag fór ég
með mótorbát til Reyðarfjarðar og kom þangað kl. 10 árdegis og sam-
stundis með bíl upp Eagradal yfir að Egilsstöðum á Völlum. Það eru
um 35 km. Er það einkennileg og fögur leið. Það var í fyrsta sinn, sem
ég hefi komið upp á Héraðið og þótti mér svipmikið að horfa yfir það,
og var þó hvergi nærri góð fjallasýn. Það var mjög mannkvæmt á Eg-
ilsstöðum, því þar var haldið búnaðarþing nokkurt, eru þar og ærin
húsakynni og næsta stórstaðarlegt. Þar dvaldist ég fram eftir deginum og
fór síðan í bíl til Eiða. Þar er einnig stórhýsi og alt vel um vandað.
Ég fékk þar ágætis viðtökur hjá frú Steinunni, konu Ásmundar dócents
Guðmundssonar, og átti þar hina beztu nótt. Þar stóð yfir íþróttanám-
skeið og var þar því margt af pilfum. Þar er rennsléttur knattspyrnu-
völlur. Næsta dag átti ég að fara niður í Hjaltastaðaþinghá og hafa sam-
komu þar, en um morguninn var símað þaðan, að engin samkoma gæti
þar orðið, vegna þess að þeir hefðu fengið boðin svo seint og var þar
svo samkoma ákveðin næsta þriðjudag. Var ég svo um kyrt að Eiðum
þann dag og skorti ekki gnægð til skemtunar og þæginda, þótt fremur
væri dapurlegt veður. Þau hjónin, séra Jakob Kristinsson og frú hans
voru þar nýkomin, en hann á að verða þar skólastjóri. Leið dagurinn
fljótt og skemtilega við samtöl og lestur í Fljótsdælu. Mér sárnaði hve
langt var um liðið, síðan ég hafði Iesið hana. Um kvöldið hélt ég kristi-
leg erindi í kirkjunni út frá Orðskv. Sal. 4, 23 um styrkleika hins hreina
hjarta. Var aðeins heimilisfólk og piltar námskeiðsins þar við, en það
var samt all-álitlegur söfnuður, og kirkjan mjög viðkunnanleg. Þetta var
laugard. 23. júní. En næsta dag, sunnud., átti ég að vera á tveim sföð-
um, bæði að Kirkjubæ í Hróarslungu og að Sleðbrjót í Jökulsárhlíð.
Voru þrír piltar úr ungmennafélaginu „Hróar“ komnir laugardagskveldið