Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 175
PrejtaféUgsritið. Tvö bréf frá séra Jóni Bjarnasyni. 161
marga góða, sem á síðari öldum hefir verið ritað í guðfræði.
Til merkis um, hvað mjög þeir »útrera« sína kenningu get
ég þess, að deila hefir verið meðal þeirra um það, hvort
leyfilegt væri að taka rentur af lánsfje, og var það, að minsta
kosti um tíma, álitið rétttrúað, að rentur væru andstæðar
kristindóminum. Þeir hanga í einstökum orðum ritningarinnar
og bíta sig þar fasta og uppástanda í ósköpum, að sín ætlan
sé hin eina rétta, jafnvel hin eina sanna og sáluhjálplega.
Til dæmis upp á, hvað vel þeir nota biblíuna, skal ég geta
þess, að á sunnudaginn var (1. e. þr.) prédikaði Larsen for-
stöðumaður skólans hér út af hlýðni barna við foreldra sína.
Mintist hann þá þess, að í orðskviðum Salómons stæði, að
augu þess manns, er væri óhlýðinn foreldrum sínum, skyldu
hrafnar og ernir kroppa úr. Því til skýringar gat hann þess,
að hótanir guðs kæmu ekki ávalt fram, sem kæmi af guðs
langlundargeði við mennina, en þó hefðu menn »Syn for
Sagn« á stundum: Þannig hefði ekki fyrir alllöngu hér í
Ameríku maður einn komið til prests síns, sem hann sagði
hefði verið rétttrúaður, og þar af réð ég, að hann hlýtur að
hafa verið af norsku sýnódunni (því hún ein er að þeirra
áliti hin sanna og rétta og fullkomna), og beðið hann um að
gefa sig í hjónaband með unnustu sinni, fátækri stúlku.
Presturinn spurði, hvort foreldrar hans væru því samþykk;
maðurinn sagði »nei«, því föður sínum þætti stúlkan svo fá-
tæk. Þá gef ég ykkur heldur ekki saman, sagði prestur, að
niinsta kosti ekki fyr en ég hefi talað við föður þinn og reynt
að fá samþykki hans. Með það var maðurinn þó ekki ánægður,
beið því ekki boðanna, heldur fór til annars prests (sem
Larsen kallaði Sekíprest) og fékk vígslu hans; gekk svo
iriumpherandi heim fram hjá húsi prestsins síns. En svo dó
þessi maður — ég veit ekki hvað löngu síðar — á þann hátt,
að hann druknaði í á einni. Lengi var leitað eftir líkinu og
loks fanst það hjá eik nokkurri, og þar var krummi að kroppa
úr því augun. Þetta sagði Larsen væri augljós hefnd drottins
°S bókstafleg uppfylling hótunarorða þeirra, sem standa í
orðskviðunum. Þetta kalla ég nú stórkostlegt hneyksli að brúka
11