Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 235
Prestafélagsritiö.
Erlendar bækur.
221
koma það vel aö Iiafa það viÖ hendina. Verðið er nú 85 krónur í sferku
skinnbandi. Dr. J. H.
Eduavd Geismar: „Sören Kierkegaard*. Livsndvikling og Forfaiter-
virksomhed. IV.—VI. — G. E. C. Gads Forlag. — Kbhn. 1927—1928.
A tvær fyrstu bækur fyrra bindis þessa merkilega rits var minst í
Prestafélagsritinu f fyrra. Nú er síðara bindið komið út og eru það 3
bækur, hver meir en 100 bls. á stærð. 4ða bókin ber yfirskriftina „Mar-
fyr eller Digter", 5ta bókin „Kun den Sandhed, der ydmyger, opbygger",
en 6ta bókin nefnist „ Kirkestormeren“. — Hver sem kynnast viil til hlítar
lífsferli og skoðunum hins mikla danska heimspekings, og reyna að gera
sér grein fyrir gildi heimspekiskoðana hans fyrir samtíð hans og seinni
tíma, verður að lesa þessar ágnEtu bækur, sem hlotið hafa mikið lof á
Norðurlöndum.
„Dansk Kirkeliv medens Tiderne skifter". Redigeret af Johs. Nor-
dentoft. Advent 1927. — G. E. C. Gads Forlag. — Kbhn. 1927.
Um tvo fyrri árganga þessa góða kirkjulega rifs hefir áður verið
skrifað í Prestafélagsritinu og því gefin beztu meðmæli, og mun þetta
danska ársrit því orðið hér ýmsum góður gestur.
Að þessu sinni byrjar ritið með andlegum ljóðum, „Medens Tiderne
skifter —“, eftir hinn góðkunna landa vorn klausturprest Th. Tomasson.
Þá koma 8 rifgegðir um danskt kirkjulíf og ýms vandamál nútímans.
Skulu þessar nefndar: „ Kirkeproblemer", eftir sóknarprest dr. phil. C. I.
Scharling. — „Giver Studenterbevægelsen varige Resultater?", eftir yfir-
læknir dr. med. H. I. Schou. — „Modtagen og Handlen", eftir dr. theol.
Valdemar Ammundsen biskup. — „Börnene i Storbyen", eftir hjúkrunar-
konu Andreu Arffmann. — Loks eru minningarorð, með myndum, um 4
látna merkismenn: Thomas Laub organleikara og tónskáld, Carl Moe
sóknarprest og formann innra trúboðsins, Emil Staal stjórnmála- og
blaðamann, og sóknarprest Laurids Tolderlund-Hansen.
„Det danske Bibelselskabs Ordbog til det nye Testament"
(Den reviderede Gversættelse af 1907). — 0. Lohse. Kbhn. 1928. —
Kr. 10,00 danskar.
Þessi nýja orðabók biblíufélagsins danska yfir Nýja-testamentið er 541
tvídálkaðar biaðsíður í stóru átta blaða broti, en kostar þó aðeins 10 kr.
danskar. Virðist hún vera vönduð að öllu leyti og má því mæla hið
bezta með henni við alla biblíulesandi menn. An biblíu-orðabókar getur
enginn prestur verið.
„Nogle Ord af og om Pastor Johannes Munck, Möltrup“. Samlet
af Th. S. Rördam. — O. Lohse. — Kbhn. 1927. — Kr. 1,50 d.