Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 158
144
Gunnar Árnason:
Prestafélagsritiö.
lega er ekki eingöngu ætlast til að hún fremji vígsluna, heldur
ákveði hverjir sér vígsluhæfir. En eins og það er eðlilegt að
ríkið geti gert sérstakar kröfur íil presta þeirrar kirkju, sem
er í sambandi við það, t. d. það að þeir semji fyrir það ýms-
ar skýrslur og gegni þeim trúnaðarmálum þess, sem sam-
rýmst geta prestsstöðu þeirra, jafn sjálfsagt er, að kirkjan ráði
því ein hverjir séu prestar hennar. Þeir eru fyrst og fremst
þjónar hennar. Þjónusta þeirra í þágu ríkisins er aðeins af-
leidd af kirkjuþjónustu þeirra og aukaaíriði hjá henni.
Þá er spurningin: hvernig á hinn nýi kirkjuréttur að vera?
Það er ekkert auðhlaupaverk að kanna íil fullnustu hvaða
umbætur og breytingar þarf að gera á núgildandi kirkjurétti,
til þess að kirkjan geti notið sjálfsforræðis, og koma með til-
lögur í því efni, sem vænlegar væru til framgangs. Til þess
þarf að sjálfsögðu að skipa nefnd, sem situr eitt eða fleiri ár
á rökstólum. Mér virðist sannarlega komir.n tími til að hún
sé skipuð, og ég vil beina þeirri áskorun til allra, að krefjast
hennar þegar í stað. Hugsa ég mér, að í henni eigi 5—7
menn sæti og ættu þeir að rannsaka og gera tillögur til laga
um það, sem hér segir: 1. Hvaða mál skuli teljast sérmál
kirkjunnar og hvernig hún skuli þeim ráða. 2. Hvaða mál
skuli vera sameiginleg ríki og kirkju og hvernig með þau
verði farið framvegis.
Slíkar nefndir hafa undanfarin ár starfað í sumum nágranna-
löndum vorum, t. d. í Englandi, og flestar uppástungur þeirra
orðið að lögum, en þær hafa aðallega hnigið að auknu frelsi
hlutaðeigandi kirkna. í þeim nefndum hafa starfað bæði and-
legrar stéttarmenn og fulltrúar ríkisins. Tel ég sjálfsagt að eins
verði hér.
Fyndist mér heppilegt, að biskup og kirkjumálaráðherra væru
sjálfkjörnir í nefndina, en annar helmingur hinna nefndar-
manna væri skipaður af forsætisráðherra, hinn kjörinn á
prestastefnu. Vel má þó vera, að biskup skipaði einn þá
síðarnefndu. Annars skiftir litlu hvernig nefndin er skipuð eða
valin, ef henni tekst vel hlutverk sitt: að koma hinni frjálsu