Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 77
72
Kjartan Helgason:
Prestafélagsritiö:
unum alt árið 1921. Þó gefur Gandhi jarli 7 daga frest til
umhugsunar. Ef hann sýni engan vilja á að verða við kröf-
um þjóðarinnar innan þess tíma, þá verði uppreisn hafin á
ákveðnum degi.
Þegar þetta bréf var nýhlaupið af stokkunum, gerðist sá
atburður, sem Gandhi féll þyngst af öllu, og var reiðarslag
öllum vonum hans.
I smábæ einum, að nafni Chauri-Chaura, hafði lögregluliðið
ráðist á mannþyrpingu til þess að dreifa henni. En fólkið
veitti svo harðsnúið viðnám, að lögregiusveitin hörfaði undan
til stöðvar sinnar og skaut þaðan á múginn. En þá varð
hann svo æstur, að hann sló hring um stöðina, lagði eld að
og brendi húsið til kaldra kola, leyfði engum útgöngu.
Lögreglan átti hér auðvitað upptökin. Og að þessu hryðju-
verki vann enginn af félögum Gandhis; það sannaðist við
rannsókn. Hann hefði því vel getað þvegið hendur sínar og
afsalað sér allri ábyrgð á þessu verki. En það var nú ekki
honum líkt að afsaka sig. Hver sú yfirsjón, sem landa hans
henti, brann á samvizku hans. »Hann er samvizka allrar
þjóðarinnar*, hefir verið sagt um hann. Hann tók allar syndir
hennar á sínar herðar. Og svo varð um grimdarverkið í
Chauri-Chaura. Hann sakaði sjálfan sig um það. — Nú var
hann í enn meiri vanda staddur fyrir það, að hann hafði sett
jarlinum úrslitakosti. Atti hann að standa við hótun sína og
hefja uppreisn með þá þjóð að baki sér, sem ekki var þrosk-
aðri en svo, ekki upp úr því vaxin að vinna óbótaverk? Eða
átti hann að gefast upp og afturkalla uppreisnar-yfirlýsing
sína? Hann segir sjálfur um þetta, að drambsemin og djöf-
ullinn hvísli því að sér að halda áfram, en sinn betri maður
krefjist að hann afturkalli, og þeirri rödd sé hann ráðinn í
að hlýða.
Hann skrifar grein um þetta í blað sitt. Hún er full af
viðkvæmni og sárri sorg, en þó þakkar hann guði fyrir að
hann hafi opnað augu sín á síðustu stund og sýnt sér, að
þjóðin hafði ekki enn lært það, sem hún mætti til að læra,
ef hún ætti að hafa nokkurn rétt til að hefja uppreisn. Til.