Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 228
214
Erlendar bækur.
PrtstafélagsritiB.
„Norvegia Sacra“. Aarbok til Kunnskap om den Norske Kirke i
Fortid og Samtid. Sjette Aargang 1926. — Steenske Forlag. Oslo. —
256 bls. í stðru átta blaða broti. — Verð kr. 10,50 norskar.
í þessum árgangi eru fyrst 6 ritgerðir kirkjusögulegs efnis. Ritstjórinn,
prófessor Oluf Kolsrud, skrifar um „ Kollats (== skipanarbref, innsetjings-
brcv) i den Norske Kyrkja". Lektor ]oh. E. Brodahl ritar um „Preste-
kunstnere i Norge paa 1600-talIet". Fylgja þeirri ritgerð margar ágætar
myndir. — Þá kemur: „Prost Jens Colstrup. 1646 — 1720“. — „Et krisle-
lig vennebrev fra 1777“. — „Bidrag til Finnmarkens kirkehistorie. IV.
Erindringer 1825—1849 av Anders Persen Bær“. — „Menighetsdannelsen
i Santalistan".
Því næst kemur kafli um 5 látna merkismenn kirkjunnar, sem dáið
hafa á árunum 1905 til 1925. Einn þeirra manna, sem þar er minst, er
presturinn Christopher Bruun (1839—1920), sem svo margir Islendingar
kannast við. Hinir eru: „Prost Christian Martin Eckhoff. 1836 — 1905“.—
„Generalsekrelær Lars Dahle. 1843—1925“. — „Sognepræst Ole Moe.
1844—1924“. — „Fengslelspræst Olaus Breda. 1866—1924“.
Þá koma skýrslur norsku biskupanna allra 7. Því að 1924 var sjöunda
biskupsdæmið stofnað í Stavanger, og 7. júní 1925 vígði Agðabiskup,
Bernt Stöylen, hinn nýja biskup, J. C. Petersen, í Stavanger dómkirkju.
Skýrslur biskupanna eru fróðlegar. eins og að undanförnu, en auk þess
er löng og skemtileg skýrsla frá Oslóarbiskupi, Johan Lunde, um ferð
hans meðal Norðmanna í Ameríku árið 1925 og þátttöku í hátíðahöldum
til minningar um, að 100 ár voru þá liðin frá þvf að fyrstu norsku inn-
flytjendurnir komu til Bandaríkja Ameríku.
Ritið endar á: „De norske misjoner 1925“ og „Kirkelig bibliografi
1924“. — Alls eru í ritinu 46 myndir.
„Kirkens hislorie" av sogneprest Ivar Welle. — Lutherstiftelsens
Forlag. Oslo 1928. — Hefte I —IV.
Kirkjusaga þessi kemur út í skrautútgáfu með fjölda af góðum mynd-
um, og er skemtilega og alþýðlega rituð, svo að ánægja er að lesa hana.
Ætlast er til, að hún komi út í 25 heftum alls, eitt hefti á mánuði hverj-
um, er kosti 1 kr. norska. Hvert hefti er tvær arkir í stóru átta blaða
broti, og eru fjögur hefti þegar komin út.
„Norsk Teologisk Tidskrift" utgit av Lpder Brun, Anton Frid-
richsen, Oluf Kolsrud. — Oslo. Gröndahl & Söns Forlag. — 28. Aai-
gang 1927, 1.—4. Hefte, og 29. Aargang 1928, 1.—2. Hefte.
Timarit þetta flytur margar góðar guðfræðiritgerðir, sumar hálærðar,
aðrar alþýðlegar, einnig ritdóma urn ýmsar merkar bækur.
Hin tvö útkomnu hefti þessa árs eru helguð prófessor dr. theol. S.
Michelet, kcnnara í gamlatestamentisfræðum við háskólann í Osló, á 65