Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 56
Presiafélagsritiö.
Haraldur Níelsson.
51
til þess, að sér hafði mistekist. Hið guðdómlega í breytni
hans við þá var þetta, að hann kom þeim til að trúa á lækn-
andi fyrirgefning Guðs og að unt væri að láta hvaða dag
sem vera skyldi verða nýja byrjun. Og ekkert kveikir aðra
eins lífsvon og að geta trúað því« (Árin og eilífðin, bls. 8).
— Þá kom djúpur skilningur á krossferlinum fram í prédik-
unum séra H. N., skilningur á því, að krossferill óeigingjarnrar
fórnar og þjónustu væri lögmál æðstu þróunar mannlífsins —
bæði til fullkomnunar einstaklingi og heild.
Efnið í ræðum séra Haralds var bæði fræðandi og vekj-
andi og oft nýstárlegt. Var hann allra manna djarfastur að tala
um það, sem fáir áheyrenda hans höfðu áður heyrt á minst,
og fanst mörgum oft nóg um, hve mjög hann braut í bág
við viðurkendar kenningar fyrri tíðar manna. Með því hefir
hann eflaust fælt marga frá sér og vakið mótspyrnu. En þó
honum væri ant um að ryðja úr vegi ýmsum gömlum skoð-
unum, sem hann taldi trafala að, þá var honum þó enn annara
um að innræta mönnum aðrar fullkomnari og fegurri. Gætti
altaf meir uppbyggingar en niðurrifs í prédikunum hans, og
áheyrendur fundu, að aldrei var hann að halda öðru fram en
því, sem hann var fast sannfærður um og hrifinn af.
Framsetning hans var óvenjulega vönduð og skýr, svo að varla
var unt að misskilja hann. Lagði hann afarmikla vinnu í ræður
sínar og notaði mjög líkingar og sögur til þess að skýra mál
sitt, og munu margar þeirra mönnum ógleymanlegar. En fjörið
og krafturinn og áhuginn var svo mikill þegar hann flutti
prédikanir sínar, að menn veittu því naumast eftirtekt, að
rödd hans var gölluð af hæsi.
Séra Haraldur þjónaði ekki prestakalli nema lítinn tíma
áður en hann varð prestaskólakennari, en hafði um margra
ára skeið prestsþjónustu á Laugarnesspítala. í Fríkirkjunni í
Reykjavík prédikaði hann að jafnaði annan hvern helgidag
um 14 ára skeið og hófst sú prédikunarstarfsemi hans árið
1914 að tilhlutun margra Reykvíkinga, sem höfðu mætur á
honum og skoðunum hans. En auk þessa ferðaðist hann hvað
eftir annað víða um land til þess að flytja ræður og fyrir-