Prestafélagsritið - 01.01.1928, Blaðsíða 71
66
Kjartan Helgason:
Prestafélagsritiö..
íöstu og bæn. Og nú gerir hann allar þær ráðstafanir, sem
hann getur, til þess að halda á reglu og friði. Hann hrædd-
ist ekki, þó að hann vissi sverð stjórnarinnar yfir höfði sér..
Hann bar ekki kvíðboga fyrir neinu öðru en því, að gremju
lýðsins yrði ekki haldið í skefjum. — í boðskap sínum til
þjóðarinnar segir hann meðal annars: »Sú barátta, sem vér
nú hefjum, er ógerleg, nema vér höfum fullkomlega vald á
sjálfum oss. Til samvinnuneitunar þarf fullkomna reglu, skipu-
lag og stillingu. Vér verðum að útrýma allri reiði úr hugum
vorum, því að reiði leiðir til óspekta. En hverjar hinar minstu
óspektir, sem vér kunnum að gera oss seka í, munu kosta
líf margra þúsunda saklausra manna. Og — það sem verra
er, þá eigum vér víst, að sigurinn gengur oss úr greipum*.
Gandhi gaf út nákvæmar reglur um það, hvernig haga
skyldi samvinnu-neituninni. Helztu atriðin voru þessi:
Enginn taki þátt í neinum þeim störfum, sem landstjórnin
þarf að láta vinna. Allir embættismenn og sýslunarmenn, sem
stjórnin hefir skipað, segi af sér. Enginn maður gefi sig í
herþjónustu. Enginn mæti á þeim þingum eða í þeim nefnd-
um, sem stjórnin á að kalla saman, hvort heldur er til að
ræða landsmál eða héraðsmál. Enginn sæki þá skóla, sem
skipaðir eru enskum kennurum og ríkið kostar. Enginn vísi
málum sínum til dómstólanna, heldur séu allar þrætur lagðar
í gerð. — Á hinn bóginn skuli allir vinna að sjálfstjórn í
í landinu á allan löglegan hátt og friðsamlegan.
í þessum reglum er ekkert, sem beinlínis fór í bága við
lög landsins. Svo varfærinn var Gandhi; hann vildi ekki taka
skrefið stærra til að byrja með.
Samvinnu-neituninni var hlýtt í ótrúlega stórum stíl. Gandhi
reið á vaðið, skrifaði jarlinum bréf 1. ág., lýsir sorg sinni yfir
því að vera neyddur til slíkra óyndis-úrræða, og skilar aftur
öllum heiðursmerkjum, sem hann hafði þegið fyr og síðar af
enskum stjórnarvöldum. Slíkt hið sama gerði fjöldi manna.
Bréfunum rigndi yfir stjórnina frá embættismönnum og starfs-
mönnum, sem beiddust lausnar. Nemendurnir kvöddu skólana